Innlent

Gleði­tár á hvarmi Fúsa við verð­launa­af­hendingu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Verðlaunahafar ásamt forseta og formanni ÖBÍ.
Verðlaunahafar ásamt forseta og formanni ÖBÍ. ÖBÍ

Sigfús Sveinbjörn Svanbergsson og Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir fengu Hvatningarverðlaun ÖBÍ réttindasamtaka sem veitt voru í morgun. Verðlaunin voru bæði veitt fyrir tímamótaverk í íslenskum atvinnuleikhúsum. Verðlaunahafi felldi tár og ljóð var ort í tilefni dagsins.

Fjögur hlutu tilnefningu:

  • Dagbjört Andrésdóttir

Frumkvæði að vitundarvakningu um heilatengda sjónskerðingu.

  • Fúsi, aldur og fyrri störf

Höfundar: Sigfús Sveinbjörn Svanbergsson og Agnar Jón Egilsson. Leikverk sem markar tímamót í íslensku atvinnuleikhúsi.

  • Múlaborg

Leiðandi leikskóli sem leggur áherslu á inngildingu fatlaðra barna og starfsfólks þar sem öll fá þess notið að læra, vinna og leika.

  • Taktu flugið, beibí

Höfundur: Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir. Leikverk sem markar tímamót í íslensku atvinnuleikhúsi.

Það kom í hlut Höllu Tómasdóttur forseta Íslands að tilkynna verðlaunin. Gleðin var mikil hjá Sigfúsi Sveinbirni, Fúsa, sem felldi tár þegar Halla las upp verðlaunahafa. Að neðan má sjá svipmyndir frá samkomunni þar sem gleðin var við völd.

Atli Þór Þorvaldsson, fulltrúi dómnefndar, orti vísu um verðlaunahafana í tilefni dagsins:

„Fatlaðir sjást varla á sviði

svo hefur verið um hríð

þau hafa því lokið upp hliði

sem gefur vonir um betri tíð

Hún yrkir og skrifar sögur

Hreinskilnin er eins og högg

Og listin er einlæg og fögur

Við kynnum hér Kolbrúnu Dögg

Hér er annar sem fer út úr húsi

Hann veit vel hvar sín er þörf

Það er meistarinn Fúsi

Með aldur og fyrri störf


Hvatningarverðlaun ÖBÍ eru veitt ár hvert á alþjóðadegi fatlaðs fólks, 3. desember. ÖBÍ réttindasamtök standa samhliða því að átakinu Upplýst samfélag, þar sem stofnanir og fyrirtæki um allt land eru hvött til að lýsa fjólubláu og sýna réttindabaráttu fatlaðs fólks þannig stuðning. Bíó Paradís hlaut verðlaunin í fyrra fyrir átak í aðgengismálum í víðum skilningi.

Að neðan má sjá rökstuðning fyrir tilnefningunum fjórum.

Dagbjört Andrésdóttir

Dagbjört Andrésdóttir hefur staðið fyrir umfangsmikilli vitundarvakningu um heilatengda sjónskerðingu. Hún er einn höfunda heimildarmyndarinnar Acting Normal with CVI, en myndin fjallar um lífshlaup hennar og er fyrsta heimildarmyndinn sem gerð er um heilatengda sjónskerðingu í heiminum.

Dagbjört, sem fékk fyrst greiningu á heilatengdri sjónskerðingu þegar hún var 26 ára gömul, hefur samhliða útgáfu myndarinnar veitt fjölda viðtala um heilatengda sjónskerðingu og bæði aukið vitund um skerðinguna og barist fyrir réttindum.

Fúsi, aldur og fyrri störf (verðlaunahafi)

Leiksýningin Fúsi, aldur og fyrri störf, markar tímamót í íslensku atvinnuleikhúsi. Sýninguna skrifa frændurnir Sigfús Svanberg Sveinbjörnsson og Agnar Jón Egilsson en verkið fjallar um ævi hins fyrrnefnda. Þetta er í fyrsta sinn sem leikskáld og leikari með þroskahömlun leikur og semur eigið verk í íslensku atvinnuleikhúsi.

Leikverkið hefur verið sýnt í Borgarleikhúsinu og víðar um land við mikla hrifningu áhorfenda og var tilnefnd til fjölda Grímuverðlauna árið 2024. Fúsi, aldur og fyrri störf, er sett upp í samstarfi við sviðsliðstaframleiðandann Monochrome og List án landamæra.

Múlaborg

Leikskólinn Múlaborg við Ármúla er leiðandi hvað varðar inngildingu í víðum skilningi. Skólastarfið er án aðgreiningar en þar eru bæði fötluð börn og starfsmenn og starfsfólk og börn af erlendum uppruna. Með inngildingu í fyrirrúmi og aðgreiningarlausu skólastarfi hefur Múlaborg tryggt leikskólaumhverfi þar sem öll fá notið sín.

Taktu flugið, beibí (verðlaunahafi)

Taktu flugið, beibí er fyrsta leikverk sviðshöfundarins Kolbrúnar Daggar Kristjánsdóttur sem sett er á svið í atvinnuleikhúsi. Kolbrún leikur sjálf í verkinu, sem sett var upp í Þjóðleikhúsinu, en það byggir á persónulegri reynslu og lífshlaupi höfundar.

Leikverkið Taktu flugið, beibí markar kaflaskil enda eykur það sýnileika og bætir birtingarmyndir fatlaðs fólks í íslensku atvinnuleikhúsi. Kolbrún Dögg hefur um áratugaskeið barist fyrir aðgengismálum og öðrum réttindamálum fatlaðs fólks.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×