Körfubolti

Tryggvi stiga­hæstur á vellinum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Tryggvi Snær Hlinason í leiknum gegn Ítalíu í Laugardalshöll á dögunum.
Tryggvi Snær Hlinason í leiknum gegn Ítalíu í Laugardalshöll á dögunum. vísir/anton

Landsliðsmiðherjinn Tryggvi Snær Hlinason var stigahæstur á vellinum þegar Bilbao Basket tapaði fyrir Baskonia, 67-69, í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag.

Tryggvi skoraði sautján stig en hann hitti úr sjö af átta skotum sínum. Hann tók einnig sex fráköst.

Lítið var skorað í leiknum og þriggja stiga nýting beggja liða var afar slök. Hún var þrettán prósent hjá Bilbao en 22,2 prósent hjá Baskonia.

Þetta var fjórða tap Bilbao í röð en liðið er í 13. sæti deildarinnar af átján liðum.

Tryggvi gekk í raðir Bilbao í fyrra eftir fjögur ár í herbúðum Zaragoza.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×