Bíó og sjónvarp

„Þannig það yrði bara til Leynilögga 1 og 3“

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Hannes Þór hefur svo margt fyrir stafni að Leynilögga 2 hefur þurft að bíða en nú stefnir í að verkefnið fari af stað fyrir alvöru.
Hannes Þór hefur svo margt fyrir stafni að Leynilögga 2 hefur þurft að bíða en nú stefnir í að verkefnið fari af stað fyrir alvöru. Vísir

Hannes Þór Halldórsson leikstjóri segist lengi hafa haft þann draum um að gera leikna heimildarþætti um gerð bíómyndarinnar Leynilöggu 2 og fara svo beint í að gera Leynilöggu 3. Líklega verði það ekki raunin enda hefur Hannes í nógu að snúast en stefnan er samt sett á að gera framhald af vinsælu myndinni.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í kvikmynda- og sjónvarpshlaðvarpinu Tveir á toppnum. Hannes er einn öflugasti kvikmyndagerðarmaður landsins en hann stendur að baki tveimur vinsælustu þáttum landsins þessa dagana, þáttunum um strákasveitina Iceguys og Bannað að hlæja með Auðunni Blöndal.

Innblásturinn frá Klovn og Curb your Enthusiasm

Í þættinum ræðir Hannes meðal annars aðdáun sína á leiknum þáttum í heimildarþáttastíl, líkt og Klovn og Curb your Enthusiasm. Hann hafi sótt mikið þangað þegar hann leikstýrði Iceguys en líkt og alþjóð veit leikstýrði Hannes kvikmyndinni Leynilöggu sem sló í gegn þegar hún kom út árið 2021.

„Stóra planið eftir Leynilöggu var að gera sjónvarpsseríu sem héti Leynilögga 2 þar sem væri verið að skjóta Leynilöggu 2 og við sæjum hana svona óbeint í gegnum behind the scenes tökur og svo yrði Leynilöggu 2 hent og svo myndum við fara og gera Leynilöggu 3 þannig það yrði bara til Leynilögga 1 og 3 og svo sjónvarpsþættir á milli um gerð Leynilöggu 2.“

Ekki fékkst fjármagn í verkið auk þess sem Hannes hefur haft nægum hnöppum að hneppa vegna Iceguys, Bannað að hlæja og annarra verkefna. Hann segir að nú standi til að gera Leynilöggu 2 og er verkefnið komið eitthvað áleiðis.

„Við erum komnir aðeins áleiðis og þetta er á to-do listanum. Það er alltaf eitthvað að þvælast fyrir, nú er ég búinn að gera tvær seríur af Iceguys sem ég var ekki að reikna með, það tekur bara tíma. Egill er alltaf að pressa á mig, við ætlum að taka helgi þar sem við lokum okkur af og klárum handritið. Það er á to-do listanum. Það verður þá bíómynd.“

Hannes segist þó sjá eftir heimildaþáttahugmyndinni. „Hversu kúl hefði verið ef það væru bara til tvær myndir? Bara Leynilögga 1 og 3 og í miðjunni gerðist fullt af einhverju dóti en við skautum bara yfir það, byrjum bara á 3 þar sem 2 hafði endað. Mér fannst þetta alveg stórkostlegt.“


Tengdar fréttir

Áður óséð efni frá gerð Leynilöggu

Kvikmyndin Leynilögga er tilnefnd sem besta gamanmyndin á Evrópsku kvikmyndaverðlaununum sem fram fara í Hörpu í kvöld. Þetta er í fyrsta sinn sem íslensk kvikmynd er tilnefnd í þessum flokki. 

Byrjaðir að vinna að Leyni­löggu 2

Leynilögga 2 gæti orðið jólamynd ársins 2024. Aðstandendur myndarinnar hafa sest niður og hafið vinnslu á verkefninu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.