Efling lætur ekki af aðgerðum á meðan SVEIT endurskoðar samning Lovísa Arnardóttir skrifar 11. desember 2024 15:26 Sólveig Anna segir Virðingu svikamyllu og gervistéttarfélag. Samiðn segir félagið svokallað „gult stéttarfélag“. Slík félög séu stofnuð af atvinnurekendum, stýrt af þeim og starfsmenn þvingaðir til að ganga í þau Vísir/Arnar Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir stéttarfélagið ekki láta af aðgerðum sínum gagnvart meðlimum SVEIT, Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði, þó svo að samtökin ætli að endurskoða kjarasamning sem þau gerði við stéttarfélagið Virðingu. Stéttarfélagið Virðing hafnar því að þau fremji lögbrot og segist ætla að laga misfellur í samningi. „
Við höldum því áfram sem við erum að gera, sem er að senda erindi á veitingahús, sem er að miðla upplýsingum til félagsfólks og annarra um það að láta ekki gabba sig til þess að ganga í þetta svokallaða stéttarfélag Virðingu. Jafnframt erum við að skoða fjölmargar aðrar leiðri til að stoppa þessa aðför að réttindum vinnandi fólks sem þarna hefur verið hrint í framkvæmd,“ segir Sólveig Anna í samtali við fréttastofu. Fimmtungur hafi sagt sig úr SVEIT Efling tilkynnti í gær um fjölmargar aðgerðir gegn meðlimum SVEIT. Þá kom fram í dag að fimmtungur meðlima SVEIT hefði sagt sig úr samtökunum eftir að tilkynning barst frá Eflingu um aðgerðirnar. SVEIT sagði svo síðdegis að þau ætluðu að endurskoða kjarasamning sinn við Virðingu eftir harða gagnrýni og að þau vonuðust til þess að Efling myndi láta af aðgerðum sínum á meðan. Efling hefur harðlega gagnrýnt kjarasamninginn sem SVEIT hefur gert við Virðingu. Þau segja Virðingu gervistéttarfélag og svikamyllu og segja kjör lakari hjá félaginu en öðrum stéttarfélögum. Það sé gengið á kjör launþega í samningnum auk þess sem þau segja það gagna gegn grundvallarreglum á vinnumarkað að atvinnurekendur stofni sjálfir stéttarfélög sem þeir krefji svo starfsmenn sína um að ganga í. BSRB, BHM, Samiðn og fleiri félög hafa tekið undir gagnrýni Eflingar. Í tilkynningu SVEIT í dag kemur einnig fram að þau hafi reynt að semja við Eflingu en að Efling hafi neitað að semja við þau. Sólveig Anna segir það ekki rétt. Þau hafi viljað semja við þau en þau myndi aldrei gera samning sem er með lakari kjörum en sá samningur sem þegar hefur verið gerður. Þar hafi samningaviðræðunum lokið. Hafna því að þau séu að fremja lögbrot Stjórn Virðingar stéttarfélags hafnar því alfarið í yfirlýsingu að samtökin séu að fremja lögbrot og ítrekar í yfirlýsingu að félagsmenn félagsins eigi rétt á því að stofna eigið stéttarfélag og gera þá samninga sem þeir séu tilbúnir að vinna eftir. „Virðing stéttarfélag er stofnað af starfsmönnum í veitingahúsum. Sá kjarasamningur sem félagið gerði við Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði lítur að störfum í veitingahúsum. Hann tekur mið af þeim vinnutíma og því starfsumhverfi sem þar ríkir. Kjarasamningur Eflingar er um kjör verkamanna, bifreiðastjóra, ræstingarfólks, ófaglærðs fólks á dagheimilum, iðnverkafólks, starfsfólks í kjötvinnslum, dekkjaverkstæðum, járn- og vélaverkstæðum og svo mætti lengi telja. Þannig er hann ekki sniðin að því starfsumhverfi sem ríkir á veitingastöðum,“ segir í yfirlýsingu Virðingar. Efling hafi ekki einkarétt á að semja Þar segja þau það ekki koma formanni eða stjórn Eflingar við að þau hafi viljað stofna sigg eigið stéttarfélag og vilji ekki vera í Eflingu. Efling hafi ekki einkarétt á því að semja fyrir þeirra hönd. „Sá kjarasamningur sem Virðing og veitingamenn hafa nú undirritað er gerður af fúsum og frjálsum vilja undir formerkjum félagafrelsis sem varið er af íslensku stjórnarskránni. Í sumum atriðum veitir hann betri kjör en kjarasamningur Eflingar í öðrum lakari,“ segir í tilkynningunni. Þar er einnig ýmissi gagnrýni á samninginn svarað og segir sem dæmi að þegar stofnaður verði sjúkrasjóður í nafni félagsins muni eitt prósent aukaframlag sem vinnuveitendur greiða nú til Virðingar notað í þann sjóð. Þangað til verði það notað til þess að koma styrkum stoðum undir félagið. Muni laga misfellur í samningi „Aðrar misfellur sem bent hefur verið á verða lagfærðar eins og röng tilvitnun í fæðingarorlofslög. Þá er samkomulag milli Virðingar og vinnuveitenda þess efnis að lagfæra nokkur atriði sem betur mega fara. Að lokum frábiður stjórn Virðingar sér þess að vera bendluð við lögbrot. Þá ítrekar stjórn Virðingar að félagsmenn þess hafa og eiga þann rétt að stofna sitt eigið stéttarfélag og gera þá samninga sem þeir eru tilbúnir að vinna eftir,“ segir að lokum. Yfirlýsingin er ekki undirrituð en á heimasíðu félagsins kemur fram að formaður félagsins sé Jafet Thor Arnfjörð Sigurðarson og meðstjórnendur Jóhann Stefánsson og Jóhanna Sigurbjörg Húnfjörð. Þá segir að Valdimar Leó Friðriksson hafi verið ráðinn framkvæmdastjóri en að hann taki ekki til starfa fyrr en í janúar á næsta ári.
Kjaramál Vinnumarkaður Veitingastaðir Stéttarfélög Tengdar fréttir Fimmtungur veitingastaða sem Efling sendi bréf hefur sagt sig úr SVEIT Fimmtungur allra þeirra fyrirtækja sem Efling stéttarfélag sendi bréf vegna kjarasamnings SVEIT, samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði, við stéttarfélagið Virðingu, hefur sagt sig úr samtökunum. Þá hafa enn fleiri fyrirtæki lýst því að þau muni fylgja kjarasamningum Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. 11. desember 2024 10:06 Birta nöfn og vörumerki tengd SVEIT í mótmælaskyni Efling stéttarfélag hefur sent erindi á forsvarsfólk 108 veitingastaða á höfuðborgarsvæðinu, sem eru aðilar að SVEIT, samtökum fyrirtækja á veitingamarkaði. Þar er þeim tilkynnt um ýmsar aðgerðir sem Efling mun standa fyrir vegna aðkomu samtakanna að stofnun stéttarfélagsins Virðingar. 10. desember 2024 13:46 BSRB og BHM taka undir gagnrýni á stéttarfélagið Virðingu BHM og BSRB segja stofnun stéttarfélagsins Virðingar ganga gegn grundvallarreglum á vinnumarkaði og taka undir gagnrýni Eflingar, Eflingar-Iðju og Alþýðusambands Íslands á stofnun félagsins. Félagið er stofnað af atvinnurekendum í veitingarekstri, Samtökum fyrirtækja á veitingamarkaði, SVEIT. 10. desember 2024 11:19 Mest lesið Synir konunnar lýsa andláti hennar sem létti Innlent Ikea sakað um grænþvott: „Slökkvið á myndavélunum“ Erlent Síðastliðin tvö ár verið „alveg skelfileg“ Innlent „Það er ekkert drama í þessu – ég rýk ekkert á dyr“ Innlent Daníel fær 24 ára dóm til viðbótar fyrir barnaníð Erlent Tveir fréttamenn RÚV söðla um Innlent Þau vilja taka við af Helga Grímssyni Innlent Eiga yfir höfði sér dauðadóm fyrir að hylja ekki hár sitt Erlent Vonbetri eftir daginn í dag Innlent Öskraði þegar hann var leiddur í dómsal Erlent Fleiri fréttir Ekki ákærður fyrir manndráp í Kiðjabergi Viðgerð lokið og rafmagn aftur á í Vík Síðastliðin tvö ár verið „alveg skelfileg“ Gera hlé á leitinni í Tálknafirði Hellti bensíni og bar eld að bílum í Kópavogi Tveir fréttamenn RÚV söðla um Svæðisskipulag fyrir Suðurhálendi Íslands til 2042 Framúrskarandi Íslendingur sendur úr landi Stjórnarmyndun og íbúi ósáttur vegna stanslausra framkvæmda Vonbetri eftir daginn í dag Leita einstaklings í Tálknafirði Efling lætur ekki af aðgerðum á meðan SVEIT endurskoðar samning Synir konunnar lýsa andláti hennar sem létti „Það er ekkert drama í þessu – ég rýk ekkert á dyr“ SVEIT endurskoðar kjarasamning við Virðingu Telja sólarorku ekki vera auðlind Framlengja gæsluvarðhald vegna árásar á Vopnafirði Enginn skilningur á alvarleika málsins hjá SVEIT Viðgerð hafin og enn allt keyrt á varaafli í Vík Verkefni næstu ríkisstjórnar flóknara en áður var útlit fyrir Verri afkoma ríkissjóðs ekki gott veganesti fyrir næstu stjórn Þau vilja taka við af Helga Grímssyni Fimmtungur veitingastaða sem Efling sendi bréf hefur sagt sig úr SVEIT Mega hafa einn sundlaugarvörð á vakt í Vík í Mýrdal Stærstu og umdeildustu sigrar ársins Ríkur vilji til að styðja áfram við bakið á Úkraínu Líkamsárásir, þjófnaðir og rúðubrot Níræður maður og nýbakaður tvíburafaðir duttu í lukkupottinn Auglýstu á samfélagsmiðlum fyrir 45 milljónir Óánægja í Laugarneshverfi: „Við ráðum ekki við þetta ægivald“ Sjá meira
Fimmtungur veitingastaða sem Efling sendi bréf hefur sagt sig úr SVEIT Fimmtungur allra þeirra fyrirtækja sem Efling stéttarfélag sendi bréf vegna kjarasamnings SVEIT, samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði, við stéttarfélagið Virðingu, hefur sagt sig úr samtökunum. Þá hafa enn fleiri fyrirtæki lýst því að þau muni fylgja kjarasamningum Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. 11. desember 2024 10:06
Birta nöfn og vörumerki tengd SVEIT í mótmælaskyni Efling stéttarfélag hefur sent erindi á forsvarsfólk 108 veitingastaða á höfuðborgarsvæðinu, sem eru aðilar að SVEIT, samtökum fyrirtækja á veitingamarkaði. Þar er þeim tilkynnt um ýmsar aðgerðir sem Efling mun standa fyrir vegna aðkomu samtakanna að stofnun stéttarfélagsins Virðingar. 10. desember 2024 13:46
BSRB og BHM taka undir gagnrýni á stéttarfélagið Virðingu BHM og BSRB segja stofnun stéttarfélagsins Virðingar ganga gegn grundvallarreglum á vinnumarkaði og taka undir gagnrýni Eflingar, Eflingar-Iðju og Alþýðusambands Íslands á stofnun félagsins. Félagið er stofnað af atvinnurekendum í veitingarekstri, Samtökum fyrirtækja á veitingamarkaði, SVEIT. 10. desember 2024 11:19