Telja Seyðisfjörð þola tíu þúsund tonn af eldislaxi Vésteinn Örn Pétursson skrifar 13. desember 2024 09:42 MAST hefur gefið út tillögu að rekstrarleyfi fyrir sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi vegna sjókvíaeldis Kaldvíkur hf. með allt að 10.000 tonna hámarkslífmassa af laxi. Hámark lífmassa af frjóum laxi má vera allt að 6.500 tonn. Tillagan byggir á matsskýrslu frá árinu 2020 um 10.000 tonna laxeldi í Seyðisfirði.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef MAST, en þar segir að um sé að ræða ný rekstrarleyfi sem heimili annars vegar eldi á 6.500 tonnum af frjóum laxi og hins vegar 3.500 tonnum af ófrjóum laxi í firðinum. Meira en helmingur verði frjór lax „Burðarþolsmat Hafrannsóknastofnunar fyrir Seyðisfjörð gerir ráð fyrir að hægt sé að vera með allt að 10.000 tonna lífmassa í eldi í firðinum. Áhættumat erfðablöndunar Hafrannsóknastofnunar gerir hins vegar eingöngu ráð fyrir að hægt sé að vera með 6.500 tonn af frjóum laxi í firðinum og því eru tvö leyfi auglýst,“ segir í tilkynningunni. Frestur til þess að skila inn athugasemdum við tillöguna er til 20. janúar næstkomandi, en þær skulu sendar á mast@mast.is, merktar 18081324. Umdeilt mál Áform um sjókvíaeldi í Seyðisfirði eru nokkuð umdeild, en í síðasta mánuði var greint frá því að samkvæmt könnun sem Gallup gerði væri mikill meirihluti andvígur framkvæmdinni, þar sem 61,1 prósent lýsti neikvæðri afstöðu til hennar. Í byrjun árs 2023 var samkvæmt tölfræðilega marktækri skoðanakönnun sem Múlaþing lét gera 75 prósent íbúa andvígur þessum áformum sem er mikill meirihluti.
Sjókvíaeldi Skoðanakannanir Fiskeldi Múlaþing Mest lesið Dæmdur fyrir tvær nauðganir: Kom steinmunum fyrir í kynfærum konu Innlent Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Erlent Eitt er það sem Tómas vissi og gerði, annað hvað honum gekk til Innlent Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Erlent „Þetta er bara alveg svívirðilegt“ Innlent Gæslan fylgist grannt með rússnesku skipi Innlent Harður árekstur á Reykjanesbraut Innlent Leigubílstjóri jók hraðann á rauðu ljósi og ók á eldri konu Innlent Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Viðskipti innlent „Það er prjónabylting í gangi á Íslandi“ Innlent Fleiri fréttir Braut kynferðislega á stúlku sem lá með skerta meðvitund á bráðamóttökunni Aðstoðuðu ferðamenn að Fjallabaki „Það er prjónabylting í gangi á Íslandi“ Frábær árangur Teits í alþjóðlegri keppni Eitt er það sem Tómas vissi og gerði, annað hvað honum gekk til Rýnt í stöðu Icelandair og prjónagarn selst upp Gæslan fylgist grannt með rússnesku skipi Dæmdur fyrir tvær nauðganir: Kom steinmunum fyrir í kynfærum konu „Þetta er bara alveg svívirðilegt“ Tilkynnt í annarlegu ástandi og reyndist vera á stolnum bíl Kærðir fyrir að aka á nagladekkjum Harður árekstur á Reykjanesbraut Fjármálastjórinn verður sveitarstjóri Bjóða bæjarbúum á bakgarðstónleika Segir hægrið sækja fram gegn náttúruvernd og mannréttindum Leigubílstjóri jók hraðann á rauðu ljósi og ók á eldri konu Ásta endurráðin í Bláskógabyggð Þyrlan kölluð út vegna bílveltu Sjálfstæðisflokkur tekur Framsókn með sér í meirihluta Sögðust ekki ætla að setja börn í lokað búsetuúrræði en nú er tónninn annar Áhyggjur Barnaheilla, veikindi prinsessu og sjómannadagur Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Grunaður um fíkniefnabrot á reynslulausn og neitaði að gefa upp nafn Önnur stúlka grunuð um að hafa sparkað ítrekað í hana Kveður eftir ævilangt starf Styrkja fjarskiptainnviði vegna almyrkvans en ítreka forgang 112 Nærbuxur í sundi landlægt vandamál Sérsveitaraðgerð á Akureyri Fólskuleg árás og óvinsæl sundtíska Furðulegum fiskum, hetjum hafsins og brunabangsa bregður fyrir um helgina Sjá meira