Hlýnar með skúrum og slydduéljum Lovísa Arnardóttir skrifar 14. desember 2024 08:01 Hiti verður á bilinu 0 til 6 stig eftir hádegi. Vísir/Vilhelm Í dag snýst í suðvestlæga átt og 10 til 18 metra á sekúndu. Það hlýnar með skúrum og slydduéljum en verður úrkomulítið á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti verður á bilinu 0 til 6 stig eftir hádegi.
Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar í dag. Þar segir að veðurbreytingarnar megi rekja til vaxandi lægðar á Grænlandssundi. Í kvöld fari svo að kólna vestanlands og úrkoman verði þá éljakenndari. Á morgun verður svo vestan og suðvestan kaldi eða strekkingur og él, en þurrt austantil. Eftir hádegi dregur svo smám saman úr vindi. Frost víða 0 til 5 stig. Nokkuð greiðfært virðist um allt land en þó snjóþekja, hálka og hálkublettir víða. Nánar um veður á vef Veðurstofunnar og færð vega á vef Vegagerðarinnar. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á sunnudag: Vestan og suðvestan 8-15 m/s og él, en úrkomulítið austantil. Lægir norðanlands eftir hádegi. Frost víða 0 til 5 stig. Á mánudag: Suðvestlæg eða breytileg átt 3-10 og él, en þurrt um landið austanvert. Frost 0 til 12 stig, kaldast norðaustantil. Á þriðjudag: Sunnan og suðaustan 5-13 og él, en þurrt norðaustanlands. Vægt frost. Vaxandi norðaustanátt um kvöldið og allvíða snjókoma eða slydda. Á miðvikudag: Útlit fyrir hvassa norðanátt með snjókomu eða slyddu, einkum norðan- og austanlands. Hiti nálægt frostmarki. Á fimmtudag: Minnkandi norðanátt og þurrt að kalla, en él á Norðaustur- og Austurlandi. Kólnar í veðri. Snýst í suðaustanátt um kvöldið með snjókomu eða slyddu sunnan- og vestantil. Á föstudag: Suðvestlæg eða breytileg átt og allvíða skúrir eða él.
Veður Færð á vegum Mest lesið Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Innlent Ráðherrabrölt Flokks fólksins kostað 18 milljónir Innlent Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Innlent Þingheimur hló að þýðingu Daða Más Innlent Gríðarstór vatnselgur undir Breiðholtsbrú Innlent Mannréttindadómstóllinn vísar máli Nöru frá Innlent Vilja 25 billjónir: „Það þarf peninga til að drepa vonda kalla“ Erlent Dælan anni ekki vatnsmagni Innlent Skráði bóluefni sem dánarorsök án sannana Innlent Aflýsa tólf flugferðum frá Ameríku Innlent Fleiri fréttir Svæði rýmt á Ísafirði og beðið eftir illviðri Hvassviðri og talsverð rigning Holtavörðuheiði lokað á miðnætti og tvísýnt um Öxnadalsheiði Víða hægir vindar en hvessir í kvöld Enn viðvaranir og óvissustig vegna snjóflóðahættu Veðurviðvaranir vegna sterkra hviða og mikillar snjókomu Holtavörðuheiðin opin á ný Bætir í norðaustanáttina að nýju Loka heiðinni og opna fjöldahjálparstöð: Biðja „ALLA“ um að halda sig heima Önnur rúta fór út af og Hringvegi lokað að hluta „Blint í stórhríð á Vestfjörðum“ Gular viðvaranir á norðvesturhorninu: Rýma atvinnuhúsnæði og loka vegum Hvessir á mestöllu landinu í kvöld Stífri norðanátt beint til landsins og vegir lokaðir Reiknað með stormi vestantil og hríðarviðvaranir í gildi Færð geti víða spillst hratt Él og slydduél í dag og önnur lægð á morgun Eldingu laust niður á höfuðborgarsvæðinu Gul viðvörun og enn líkur á eldingum Varað við þrumuveðri með tíðum eldingum Kröpp lægð yfir landinu og úrkoman blönduð Gular veðurviðvaranir í kortunum Köldu lofti beint til landsins Gular viðvaranir á suðvesturhorninu Ört dýpkandi lægð á leiðinni og appelsínugular viðvaranir Appelsínugul viðvörun á morgun Vara við stórhríð á Austurlandi Snjókoma víða en bjart sunnan heiða Væta sunnantil og töluverð hláka í höfuðborginni Hvetja fólk til að fara fyrr heim vegna veðurs Sjá meira