Lífið

Snerting á stuttlista fyrir Óskars­verð­launin

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Snerting hlaut lof í erlendum jafnt sem innlendum miðlum þegar hún kom í bíó í sumar. 
Snerting hlaut lof í erlendum jafnt sem innlendum miðlum þegar hún kom í bíó í sumar.  Lilja Jóns

Kvikmyndin Snerting eftir Baltasar Kormák hefur verið valin á stuttlista Óskarsverðlaunanna í flokknum besta erlenda kvikmyndin. 

Greint var frá því í september að Snerting hefði verið valin sem framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna. Fimmtán kvikmyndir hafa nú verið valdar á stuttlista í flokknum og er Snerting meðal þeirra, en 85 þjóðir sendu inn framlag til verðlaunanna. 

Stuttlistar í tíu flokkum voru birtir á vef Óskarsverðlaunanna í dag, þar á meðal stuttlistinn í flokknum besta erlenda kvikmyndin. 

Meðlimir akademíunnar svokölluðu munu kjósa um þær myndir sem hljóta tilnefningu til verðlaunanna en í janúar verður ljóst hvort myndin hlýtur endanlega tilnefningu eða ekki.

Kvikmyndirnar á stuttlistanum eru eftirfarandi:

  • Noregur: „I’m Still Here
  • Kanada: Universal Language
  • Tékkland: Waves
  • Danmörk: The Girl with the Needle
  • Frakkland: Emilia Pérez
  • Þýskaland: The Seed of the Sacred Fig
  • Ísland: Touch (Snerting)
  • Írland: Kneecap
  • Ítalía: Vermiglio
  • Lettland: Flow
  • Noregur: Armand
  • Palestína: From Ground Zero
  • Senegal: Dahomey
  • Tæland: How to Make Millions before Grandma Dies
  • Bretland: Santosh

Snerting hlaut tilnefningu til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs á árinu. Þá hlaut Baltasar Kormákur hin eftirsóttu Roger Ebert Golden Thumb verðlaun fyrir myndina í ágúst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.