Innlent

Máttu ekki selja í stæði við Engja­veg fyrir Jóla­gesti Björg­vins

Lovísa Arnardóttir skrifar
Tónleikarnir eru haldnir í Laugardalshöll á laugardag.
Tónleikarnir eru haldnir í Laugardalshöll á laugardag. Vísir/Vilhelm

Reykjavíkurborg veitti ekki leyfi til gjaldtöku á bílastæðum við Laugardalshöll fyrir jólatónleika Björgvins Halldórssonar um helgina. Sena er því ekki lengur að selja í stæði við Engjaveg. Á vef Senu er upplýsingasíða fyrir stæðasöluna. Þar kemur fram að selt sé í tvö stæði við höllina en jafn mikið kostar í bæði stæðin, 5.990 krónur. 

Í svari frá Reykjavíkurborg til fréttastofu um málið kemur fram að Sena, sem heldur tónleikana, hafi fengið leyfi frá Íþrótta- og sýningarhöllinni hf., sem rekur Höllina, til að selja í stæðin. Sena var upprunalega að selja í þrjú ólík stæði, A, B og C en er núna aðeins að selja í stæði B og C.

Á myndinni til vinstri má sjá stæðin sem fyrst var verið að selja aðgang að og svo til hægri þau stæði sem nú er verið að selja aðgang að.Sena

Eva Bergþóra Guðbergsdóttir samskiptastjóri borginnar segir alveg klárt að svæði A sé landsvæði Reykjavíkurborgar og því hafi þau bent Senu á að það mætti ekki selja aðgang að stæðunum við Engjaveg. Eftir það hafi Sena hætt að selja í stæði á svæði A.

„Þessi mál verða tekin til skoðunar á nýju ári,“ segir Eva Bergþóra.

Fjallað var um málið á vef Heimildarinnar í gær. Bílastæðin eru alla jafna gjaldfrjáls en fram kom í frétt Heimildarinnar að þetta væri ekki í fyrsta sinn sem Sena selur aðgang að stæðunum. Sem dæmi hefði það verið gert á tónleikum Backstreet Boys.

Í frétt Heimildarinnar sagði framkvæmdastjóri Senu, Ísleifur Þórhallsson, að með því að selja aðgang að stæðunum væri verið að „leitast við að auka gæði tónleikahaldsins og auka þjónustu við tónleikagesti.“

Nánast uppselt er á tónleikana en ódýrustu miðarnir voru seldir á 9.990 krónur en þeir dýrustu á 29.990. Enn er hægt að kaupa VIP miða og á svæði B. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×