Sáu ekki til sólar en unnu samt 26. desember 2024 17:00 Mikil þoka lagðist yfir völlinn eftir um sextíu mínútur og boltinn týndist nánast þegar hann fór hátt upp í loft. Clive Mason/Getty Images Nottingham Forest vann með einu marki gegn engu þegar Tottenham Hotspur kom í heimsókn. Mikilvæg þrjú stig fyrir heimamenn sem eru í harðri Meistaradeildarsætisbaráttu, hrikaleg niðurstaða fyrir Tottenham sem situr í neðri hluta deildarinnar og var að missa enn einn varnarmanninn í meiðsli. Gestirnir voru meira með boltann en heimamenn ógnuðu í skyndisóknum og komust yfir eftir eina slíka, þegar tæpur hálftími var liðinn af leiknum. Morgan Gibbs-White vann boltann á eigin vallarhelmingi og óð upp völlinn, fann svo Anthony Elanga sem kláraði færið einn gegn markverðinum. Morgan Gibbs-White gerði vel og lagði upp mark.Michael Regan/Getty Images Tottenham komst næst því að skora mark þegar Brennan Johnson barst boltinn á 39. mínútu, hann þrumaði að marki en Matz Sels var snöggur að bregðast við og blakaði boltanum yfir. Brennan Johnson fékk annað gott færi og var næstum því búinn að jafna í upphafi seinni hálfleiks. Hann tók frábærlega við boltanum í teignum og skaut af mjög stuttu færi en þá varði markmaðurinn með fætinum. Tottenham tókst hins vegar ekki að skora jöfnunarmark og leikurinn fjaraði á endanum út, 1-0 sigur Nottingham niðurstaðan. Þá versnaði staðan enn frekar fyrir Tottenham því Radu Dragusin fór meiddur af velli og Djed Spence fékk rautt spjald í uppbótartíma. Þeir bætast við á langan lista varnarmanna sem verða frá í næsta leik gegn Wolves. Enski boltinn