Innlent

Fjögur mál til lands­kjör­stjórnar vegna al­þingis­kosninganna

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Krstín Edwald formaður landskjörstjórnar segir að umsagnir stjórnarinnar um tvær kærur og tvö erindi vegna alþingiskosninganna verði lokið 14. janúar. Þá úrskurði Alþingi í málunum.
Krstín Edwald formaður landskjörstjórnar segir að umsagnir stjórnarinnar um tvær kærur og tvö erindi vegna alþingiskosninganna verði lokið 14. janúar. Þá úrskurði Alþingi í málunum. Vísir

Píratar í Suðvesturkjördæmi fara fram á í kæru sinni til landskjörstjórnar að alþingiskosningarnar verði gerðar ógildar. Formaður landskjörstjórnar segir að alls hafi tvö erindi og tvær kærur borist vegna kosninganna. Búist sé við að Alþingi fái umsögn um málin í næstu viku.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn í Suðvest­ur­kjör­dæmi lagði fram í desember eins og áður hefur komið fram, kæru til landss­kjör­stjórn­ar meðal annars vegna taln­ing­ar at­kvæða í kjör­dæm­inu og synj­un­ar yfir­kjör­stjórn­ar á end­urtaln­ingu at­kvæða. Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, datt inn á þing sem jöfnunarþingmaður þegar lokatölur bárust úr Suðvesturkjördæmi. Willum Þór Þórsson féll þá út sem kjördæmakjörinn þingmaður í kjördæminu. Þá sendu Píratar inn kæru í sama kjördæmi.

Kristín Edwald formaður Landskjörsstjórnar segir að alls hafi fjögur mál borist til stjórnarinnar vegna alþingiskosninganna. 

„Það komu kærur annars vegar frá umboðsmönnum B-lista Framsóknarflokksins í suðvestur og svo barst kæra frá umboðsmanni Pírata í sama kjördæmi. Þá voru tvö erindi um framkvæmd kosninganna frá tveimur öðrum stöðum,“ segir Kristín.

Píratar krefjast ógildingar

Píratar sem duttu út af þingi í síðustu alþingiskosningum krefjast ógildingar kosninganna og hafa sent inn kæru fyrir Suðvesturkjördæmi.

„Í kærunni frá Pírötum eru gerðar ýmsar athugasemdir við framkvæmd kosninganna í Suðvesturkjördæmir. Þar er þess krafist að kosningarnar verði gerðar ógildar. Hin kæran varðar synjun yfirkjörstjórnar í suðvestur á endurtalningu,“ segir Kristín. 

Landskjörstjórn mun fara yfir erindin og kærurnar á föstudag og svo aftur á þriðjudag til að ganga frá umsögnum.

Klára í næstu viku

„Við búumst við að við munum ljúka þessu núna 14. janúar,“ segir Kristín. 

Undirbúningsnefnd Alþingis fyrir rannsókn kosninga tekur síðan við umsögnunum og að því loknu kjörbréfanefnd. Fyrr getur þing ekki komið saman. Þingið þarf að koma saman tíu vikum eftir kosningar, ekki seinna en 8. febrúar. 

Aðspurð um hvort það sé algengt að fram komi kærur þar sem farið sé fram á að kosningar séu gerðar ógildar svarar Kristín: 

„Nei það er ekki algengt í sögunni það er það ekki en hefur þó gerst áður,“ segir Kristín.

Síðast var farið fram á ógildingu alþingiskosninga í norðvesturkjördæmi  árið 2021 eftir að í ljós kom að ljörgögn voru ekki innsigluð eftir lok talningar alþingiskosninga það ár snemma morgun 26. september heldur skilin eftir á Hótel Borgarnesi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×