Enski boltinn

Van Dijk sáttur við frammi­stöðu Trents á móti Man. United

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Trent Alexander-Arnold var harðlega gagnrýndur fyrir frammistöðu sína en fyrirliðinn stendur með honum.
Trent Alexander-Arnold var harðlega gagnrýndur fyrir frammistöðu sína en fyrirliðinn stendur með honum. Getty/Carl Recine

Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool, tók ekki undir þær kenningar um að umræða um framtíð Trents Alexander-Arnold hafi orðið til þess að hann spilaði ekki vel í stórleiknum á móti Manchester United um helgina.

Alexander-Arnold tapaði boltanum og var algjörlega týndur í vörninni þegar Manchester United komst yfir í leiknum á Anfield og Trent átti að flestra mati mjög dapran leik í 2-2 jafntefli liðanna. Hann var tekinn af velli á 86. mínútu.

Fyrir leikinn kom það fram í fjölmiðlum að Real Madrid hafi boðið í Alexander-Arnold en að Liverpool hafi á móti hafnað því tilboði. Samningur bakvarðarins rennur út í sumar.

Sömu sögu er að segja af Virgil van Dijk og framherjanum Mohamed Salah.

BBC segir frá því að Van Dijk hafi verið spurður beint út í það hvort að fréttir um framtíð Trents hafi truflað frammistöðu enska landsliðsmannsins.

„Nei ég var sáttur við hana,“ sagði Van Dijk en BBC segir frá. Fyrirliðinn stendur með sínu manni og vildi ekki gagnrýna frammistöðu hans í leiknum.

„Trent er með sitt fólk í kringum sig, fjölskyldu sína og við stöndum með honum líka,“ sagði Van Dijk.

„Hann vill standa sig eins vel og hann getur. Það viljum við allir. Einbeitingin okkar er á það,“ sagði Van Dijk.

Van Dijk talaði sjálfur um það í október að viðræður um framlengingu samningsins hans væru í gangi. Eftir leikinn á móti United sagði hann þó að það væru enn engar fréttir af þeim málum.

Salah talaði líka áfram eins og þetta væri hans síðasta tímabil með Liverpool.

Salah birti síðan mynd af sér með þeim Alexander-Arnold og Van Dijk frá því í leiknum um helgina. Það ýtur enn frekar undir það að ekkert sé að gerast í samningamálum þremenninganna.

Það er því full ástæða fyrir stuðningsmenn Liverpool að hafa áhyggjur af samningamálum þessara þriggja lykilleikmanna félagsins. Allir geta þeir farið frítt frá félaginu í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×