Leik lokið: Svíþjóð - Ísland 26-24 | Svekkjandi tap í síðasta leik fyrir HM Ágúst Orri Arnarson skrifar 11. janúar 2025 16:31 Elvar Örn Jónsson í baráttunni við Max Darj sem meiddist í fyrri leik Íslendinga og Svía á fimmtudagskvöld. EPA/Johan Nilsson Ísland tapaði með tveimur mörkum í æfingaleik ytra gegn Svíþjóð, síðasta leiknum fyrir heimsmeistaramótið. Strákarnir okkar áttu erfitt uppdráttar sóknarlega, lentu langt eftir á í fyrri hálfleik og þurftu, þrátt fyrir betri spilamennsku í seinni hálfleik, að sætta sig við 26-24 tap. Til að byrja með sýndu strákarnir okkar ekki sama kraft í sóknarleiknum og þeir gerðu í síðasta leik. Mun hægara yfir hlutunum, minna leitað á línuna og meira um dýr mistök, áttu til dæmis tvö misheppnuð hraðaupphlaup í röð eftir að hafa stolið boltanum. Lentu líka þrisvar í því í fyrri hálfleik að missa mann af velli í tvær mínútur, en Svíar aldrei. Björgvin Páll stóð vel í markinu og varnarlega var liðið oft að gera vel, en hélt ekki alltaf einbeitingu. Sérstaklega reyndist erfitt að stöðva Lukas Sandell, sem skoraði nánast að vild í fyrri hálfleik. Á sjö mínútna kafla um miðjan fyrri hálfleik skoraði Ísland ekki mark og Svíarnir breyttu stöðunni úr 7-6 í 10-6. Þeir náðu mest fimm marka forskoti en góður endasprettur hjá Íslandi skilaði stöðunni 14-11 í hálfleik. Sýndu styrk sinn í upphafi seinni hálfleiks Ísland byrjaði seinni hálfleik síðan virkilega vel og var komið marki yfir þegar aðeins tólf mínútur voru liðnar. Það var lang besti kafli Íslands í leiknum en þá tók Eric Johansson sig til og endaði markaþurrð heimamanna með tveimur snilldarskotum, sem kyntu aftur undir heimamönnum. Íslenska liðið fór aðeins að fipast eftir það, gaf tvö víti í næstu sóknum og missti Svíana frá sér. Viktor Gísli gaf Íslandi von með frábærri markvörslu undir lokin, það tókst að minnka muninn í eitt mark og halda spennu alveg til enda en Svíarnir spiluðu lokasóknina vel og unnu að lokum tveggja marka sigur. Undirbúningi lokið fyrir HM Nú hefur Ísland leikið báða æfingaleikina. Heimsmeistaramótið hefst þriðjudaginn 14. janúar næstkomandi. Riðill Íslands verður spilaðir í Zagreb, Króatíu. Ísland leikur fyrsta leik sinn gegn Grænhöfðaeyjum fimmtudaginn 16. janúar. Liðið leikur svo annan hvern dag, fyrst gegn Kúbu og síðan Slóveníu, áður en milliriðlar taka við. Landslið karla í handbolta HM karla í handbolta 2025