Jafnt í toppslagnum í Skírisskógi 14. janúar 2025 19:32 Mohamed Salah þandi ekki netmöskvana í kvöld. /Liverpool FC/Getty Images Topplið Liverpool náði aðeins jafntefli gegn Nottingham Forest sem er óvænt í 3. sæti ensku úrvalsdeildarinnar um þessar mundir. Forest gerði sér lítið fyrir og lagði Liverpool á Anfield fyrr á leiktíðinni. Gestirnir áttu því harma að hefna en voru hins vegar hálfsofandi í upphafi leiks og það nýtti heimamenn sér. Það voru aðeins sex mínútur liðnar þegar Anthony Elanga fann Chris Wood sem kom Forest yfir með sínu 13. marki á leiktíðinni. Staðan í Skírisskógi var 1-0 allt þangað til Arne Slot sendi þá Konstantinos Tsimikas og Diogo Jota inn af bekknum. Þeir voru varla komnir inn á völlinn þegar Jota var búinn að jafna metin eftir undirbúning Tsimikas. Staðan orðin 1-1 og reyndust það lokatölur þó svo að Liverpool hafi fengið fjölda færa til að vinna leikinn. Liverpool er á toppi deildarinnar með 47 stig að loknum 21 leik. Forest er í 2. sæti með 41 stig eftir að hafa leikið leik meira. Enski boltinn
Freyr yfir sig stoltur: „Mikilvægt að sjá börnin sín vaxa í þessu lífi sem við höfum valið“ Fótbolti
Freyr yfir sig stoltur: „Mikilvægt að sjá börnin sín vaxa í þessu lífi sem við höfum valið“ Fótbolti