Saklaus þrátt fyrir að kalla lögreglumann „heimskan og hvítan“ Sindri Sverrisson skrifar 11. febrúar 2025 16:01 Sam Kerr er nú laus allra mála. Getty/Peter Nicholls Ástralska knattspyrnukonan Sam Kerr, framherji Chelsea, er laus allra mála eftir að hafa verið ákærð fyrir kynþáttaníð í garð lögreglumanns.
Atvikið átti sér stað í Twickenham í suðvesturhluta London þann 30. janúar fyrir rúmum tveimur árum. Kerr kallaði lögreglumann „heimskan og hvítan“ en sagði fyrir rétti að lögreglan hefði egnt hana upp. Hún hafði verið flutt á lögreglustöð eftir deilu við leigubílstjóra. Kerr neitaði því ekki að hafa kallað lögreglumanninn, Stephen Lovell, heimskan og hvítan en hafnaði því að það gæti talist lögbrot vegna kynþáttaníðs. Ástralska landsliðskonan hafði verið á djamminu með kærustu sinni, Kristie Mewis, áður en leigubílstjóri ók þeim á lögreglustöð og kvartaði undan því að rúða í bílnum hefði verið brotin og að þær hefðu neitað að greiða þrifagjald eftir að önnur þeirra ældi í bílnum, samkvæmt frétt BBC. Kerr kvaðst sjá eftir því hvernig hún hefði látið en sagði það ekki hafa verið hugsað sem móðgun að segja Lovell hvítan. „Mér fannst hann vera að nota sína forréttindastöðu gegn mér því hann var að saka mig um að vera eitthvað sem ég er ekki. Ég var að reyna að sýna þau forréttindi sem þeir höfðu, að þeir myndu aldrei skilja það sem við höfðum gengið í gegnum og hvernig við óttuðumst um líf okkar,“ sagði Kerr samkvæmt BBC.
Enski boltinn Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Fleiri fréttir Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Sjá meira