Sviptir hulunni af þrettánda barni Musks Samúel Karl Ólason skrifar 16. febrúar 2025 10:12 Þetta er þrettánda barn Elons Musk, sem vitað er um. Hann hefur þó ekki gengist við því að eiga barnið. EPA/WILL OLIVER Hægri sinnaði rithöfundurinn og áhrifavaldurinn Ashley St. Clair, staðfesti á dögunum að hún hefði eignast barn með Elon Musk, auðugasta manni heims. Þetta er þrettánda barn auðjöfursins en St. Clair segist hafa eignast það fyrir um fimm mánuðum síðan.
Í yfirlýsingu sem hún birti á X, samfélagsmiðli Musks, á föstudaginn sagðist hún ekki hafa ætlað að opinbera faðerni barnsins en að fjölmiðlar væru farnir að ganga á hana. Bað hún fjölmiðla um að virða einkalíf barnsins. St. Clair er 26 ára gömul og Elon Musk er 53. Hann á nú þrettán börn, sem vitað er um, með fjórum konum. Hann á fimm börn með Justine Wilson, fyrrverandi eiginkonu hans, þrjú börn með kanadísk söngkonunni Claire Elise Boucher, eða Grimes, og þrjú börn með Shivon Zilis, yfirmanni Neuralink, fyrirtækis í hans eigu. Mörg af þessum börnum hafa fæðst á undanförnum fimm ár. Ashley St. Clair í Las Vegast 2023.Getty/Bryan Steffy „Whoa“ Musk hafði ekki tjáð sig um fregnirnar fyrr en í gær og þá gerði hann það á X, við færslu þar sem því var haldið fram að St. Clair hefði varið hálfum áratug í að reyna að eignast barn með auðjöfrinum. „Whoa,“ skrifaði Musk við skjáskot af ummælum St. Clair frá árinu 2020 þar sem hún skrifaði að hún þyrfti að komast í samband við Musk vegna brúðkaupstilboðs. Musk hefur ekki gengist við barninu. Hún skrifaði svo eigið svar við ummæli Musk, þar sem hún sagði: „Elon, við erum búin að reyna að ná í þig í nokkra daga og þú hefur ekki svarað. Hvenær ætlar þú að svara okkur í stað þess að svara opinberlega dylgjum frá manni sem birti nýverið mynd af mér á nærfötunum frá því ég var fimmtán ára gömul?“ Hún eyddi svo svarinu seinna meir og sagðist ætla að taka sér pásu frá X. Upplýsingafulltrúi hennar sagði að hún og Musk hefðu unnið að samkomulagi um uppeldi barnsins. Beðið sé eftir því að hann viðurkenni hlutverk sitt og ljúki við gerð samkomulagsins eins fljótt og auðið sé. Hélt leynd yfir óléttunni Í viðtali við New York Post segir St. Clair að samband hennar og Musks hafi byrjað á skilaboðasendingum á X. Hann hafi verið fyndinn og jarðbundinn en á þeim tíma segist hún ekki hafa haft mikinn áhuga á Musk, í sjálfu sér. Hún segir að skömmu síðar hafi hún verið beðin um að ferðast til San Francisco og hitta Musk, sem hún gerði. Þau hittust fyrst í höfuðstöðvum X, sem þá hét Twitter, þegar hún var 24 ára og hann 51, þar sem hún tók viðtal við hann. Seinna meir varð hún ólétt en St. Clair segir að sér hafi verið skipað að halda barninu leyndu. Hún hafi verið alein alla óléttuna og upplifað mikla einangrun. Þá segir í grein NY Post að samskipti milli hennar og fjármálastjóra Musks sýni að hann hafi ekki viljað koma fram á fæðingarvottorði barnsins. Eftir að hún eignaðist barnið myndaðist umræða á netinu um að Musk ætti það og St. Clair segir að öfgafullir aðdáendur auðjöfursins hafi byrjað að senda sér hótanir og hótað barni hennar. Þeir hafi kallað hana hóru.
Bandaríkin Elon Musk Mest lesið Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Lífið Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Lífið Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden Lífið Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki ennþá“ Tónlist Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs Gagnrýni Lofar nýrri Ódysseifskviðu fyrir árslok Bíó og sjónvarp „La La Höndin“ úr sögunni Lífið Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Lífið Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Lífið Ali G snýr aftur Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Sjá meira