Orri Freyr magnaður þegar það leið yfir annan dómarann Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 20. febrúar 2025 19:45 Orri Freyr og Aron Pálmarsson fyrir leik kvöldsins. EHF Orri Freyr Þorkelsson átti frábæran leik í liði Sporting sem mátti þola eins marks tap gegn Íslendingaliði Veszprém í Meistaradeild Evrópu karla í handbolta. Dómari leiksins stal hins vegar fyrirsögnunum en það leið yfir hann í fyrri hálfleik leiksins.
Leiknum lauk með 33-32 sigri heimamanna í Veszprém. Orri Freyr var markahæstur ásamt Hugo Descat í liði Veszprém og Martim Costa í liði Sporting, allir skoruðu þeir átta mörk. Orri Freyr var hins vegar sá eini sem var með 100 prósent skotnýtingu. Aron Pálmarsson skoraði tvö mörk í liði Veszprém og gaf eina stoðsendingu. Bjarki Már Elísson var hins vegar fjarri góðu gamni. Handboltasérfræðingurinn Rasmus Boysen greinir frá því að annar af dómurum leiksins, hinn danski Jesper Madsen, hafi fallið í yfirlið. Hann er með meðvitund en Boysen segir að Mads Hansen hafi einn dæmt síðari hálfleikinn. Þá varði Viktor Gísli Hallgrímsson 16 skot í fimm marka sigri Wisla Plock á Füchse Berlín, lokatölur 32-27. Eftir leiki kvöldsins er Veszprém búið að tryggja sæti sitt í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Liðið er á toppi A-riðils með 11 sigra og aðeins eitt tap í 12 leikjum. Sporting er í 3. sæti með sjö sigra, eitt jafntefli og fjögur töp. Viktor Gísli og félagar eru í 6. sæti með fjóra sigra og átta töp. Alls eru leiknir 14 leikir í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Að þeim loknum fara efstu tvö liðin í báðum riðlum beint í 8-liða úrslit á meðan liðin í 3. til 6. sæti fara í umspil um sæti í 8-liða úrslitum.
Handbolti Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Mest lesið Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Körfubolti Fleiri fréttir Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Sjá meira