Kári Jóns meiddist illa á hné í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. apríl 2025 22:05 Kári Jónsson meiddist illa í kvöld og þetta er vonandi ekki eins alvarlegt og það leit út. Vísir/Anton Valsmenn urðu fyrir miklu áfalli í kvöld þegar landsliðsmaðurinn Kári Jónsson meiddist illa í fyrsta leiknum í einvígi Vals og Grindavíkur í átta liða úrslitum Bónus deildar karla í körfubolta.
Kári meiddist á hné í þriðja leikhluta og og spilaði ekki meira í leiknum. Hversu alvarleg meiðslin eru liggur ekki fyrir á þessari stundu en við fyrstu sýn leit þetta ekki vel út og Kári gat ekki gengið óstuddur af velli. Kári meiddist á vinstra hné þegar hann keyrði á körfuna í þriðja leikhlutanum. Hann virtist fá hnykk á hnéð og lá síðan óvígur eftir í langa stund. Kári fékk aðhlynningu á vellinum og reyndi að standa upp en kveinkaði sér ógurlega og var að lokum borinn af velli í fanginu á Finni Atla Magnússyni, styrktarþjálfara Vals. Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, var spurður út í meiðslin eftir leik en gat lítið gefið upp á þessum tímapunkti. „Ekki hugmynd. Það er allavega ljóst að hann meiddist þannig að hann gat ekki haldið áfram. Það er náttúrulega áhyggjuefni og mér fannst við svolítið „sjokkeraðir“ fyrst eftir það.“ Valsmenn náðu að klára leikinn án Kára. Hann var með 9 stig á 18 mínútum í þessum leik.
Bónus-deild karla Valur Grindavík Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Körfubolti Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Handbolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ Körfubolti Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Enski boltinn Umdeild auglýsing heldur áfram að draga dilk á eftir sér Golf Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Fleiri fréttir „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Sjá meira