Innlent

Eldur logar í bíl­skúr í Hlíðunum

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Mikill viðbúnaður viðbragðsaðila er á svæðinu.
Mikill viðbúnaður viðbragðsaðila er á svæðinu. Vísir/Sunna

Mikill viðbúnaður lögreglu er í Hlíðunum í Reykjavík þar sem eldur logar í bílskúr.

Tilkynning barst klukkan tuttugu mínútur í sex og vinna viðbragðsaðilar á vettvangi að slökkva eldinn.

Að sögn Sigurjóns Ólafssonar, varðstjóra hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, er enginn í hættu.

Á ljósmyndum sem hafa borist fréttastofu má sjá tvo slökkviliðsbíla og tvö sjúkrabíla auk lögreglu.

Samkvæmt sjónarvottum er mikil brunalykt í loftinu.

Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×