Sekt upp á sextíu milljónir króna fyrir að ná ekki vigt Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 26. apríl 2025 08:00 Vantaði svona mikið upp á að Eubanks Jr. myndi ná vigt. Bradley Collyer/Getty Images Hnefaleikakappinn Chris Eubanks Jr. náði ekki vigt fyrir millivigtar-bardaga sinn gegn Conor Benn sem fram fer síðar í dag, laugardag. Eubanks mun keppa en þarf þó að borga sekt sem hljóðar upp á rúmar 64 milljónir íslenskra króna.
The Guardian greinir frá. Í frétt miðilsins segir að hinn 35 ára gamli Eubanks hafi tvívegis reynt að ná vigt á föstudag en í hvorugt skiptið hafi það gengið. Aðeins vantaði 22 grömm upp á að Eubanks myndi ná vigt en hnefaleikakapparnir þurftu að vera 72,5 kílógrömm til að ná vigt. Báðir kappar hafa samþykkt klásúlu sem bannar þeim að bæta meira en 4,5 kílógrömmum á sig frá vigtun fram að bardaga. Það mun ekki hafa mikil áhrif á Benn sem náði vigt en Eubanks hefur keppt í ofur-millivigt, þyngdarflokk fyrir ofan millivigt, og er því vanur að vera nokkuð þyngri en hann verður þegar bardagi kvöldsins hefst. Eubanks fær milljón Bandaríkjadala, 128 milljónir íslenskra króna, fyrir að bæta ekki á sig meiru en 4,5 kílógrömmum frá vigtun til bardaga. Ef hann bætir meiru á sig þarf hann að gefa milljónirnar til baka sem og auðvitað að greiða sektina fyrir að ná ekki vigt.
Box Mest lesið Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Körfubolti Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Körfubolti Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Fleiri fréttir Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla „Getum gert stórkostlega hluti ef við höldum áfram að vera einbeittar“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Strax aftur á sigurbraut Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Vikings er eina ósigraða liðið Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Jökull sagður á leið til Blika sem standa á tímamótum Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sjá meira