Amazon í samkeppni við SpaceX í geimnum Samúel Karl Ólason skrifar 29. apríl 2025 10:07 Frá geimskotinu í Flórída í gær. AP/John Raoux Starfsmenn Amazon og United Launch Alliance skutu í gær upp fyrstu 27 gervihnöttunum í nýrri gervihnattaþyrpingu Amazon. Þyrping þessi ber nafnið Kuiper og á á endanum að vera mynduð með að minnsta kosti 3.236 gervihnöttum sem gera eiga fólki á jörðu niðri kleift að fá aðgang að netinu.
Áætlað er að þyrpingin muni kosta um tíu milljarða dala. Með þessu stefnir Amazon á að fara í samkeppni við Starlink, gervihnattaþyrpingu SpaceX en Amazon og SpaceX eru eins og frægt er í eigu tveggja auðugustu manna heims, Jeffs Bezos og Elons Musk. SpaceX hefur þegar komið rúmlega átta þúsund Starlink gervihnöttum á braut um jörðu og er því með töluvert forskot. SpaceX getur þar að auki komið farmi á braut um jörðu með ódýrari hætti en önnur fyrirtæki, vegna þess að starfsmenn fyrirtækisins lenda eldflaugum og endurnýta þær. Það er tækni sem starfsmenn Blue Origin, fyrirtækis í eigu Bezos, eru að vinna í. Þessir fyrstu gervihnettir Kuiper voru þó sendir á braut um jörðu með Atlas 5 eldflaug ULA. Markmið Amazon er að framkvæma sjö sambærileg geimskot á þessu ári og verður að minnsta kosti eitt þeirra til viðbótar með Atlas 5 eldflaug ULA. Hafa keypt tugi geimskota Seint í sumar er vonast til þess að hægt verði að nota nýja eldflaug fyrirtækisins sem kallast Vulcan en hún á að geta borið 45 gervihnetti á braut um jörðu, samkvæmt viðtali SpaceFlightNews við yfirmann ULA. Amazon hefur í heildina keypt 38 geimskot með Vulcan, auk 33 geimskota með Ariane 6 eldflaug Arianespace, Falcon 9 eldflaugum SpaceX og New Glen eldflaugum Blue Origin. Amazon mun ekki byrja að selja aðgengi að Kuiper fyrr en búið er að koma að minnsta kosti 578 gervihnöttum á braut um jörðu, seinna á þessu ári. Eins og áður segir eiga gervihnettirnir að endingu að vera 3.236 talsins og verða þeir á 590 til 630 kílómetra hæð frá jörðu. CNBC segir að markmið forsvarsmanna Amazon sé að 1.618 gervihnettir verði komnir á braut um jörðu fyrir júlí á næsta ári. Verkefnið hefur þó tafist nokkuð. Þetta fyrsta geimskot tafðist til að mynda um rúmlega ár og er talið að það gæti leitt til þess að áðurnefnt markmið náist ekki. Bezos hefur sagt að eftirspurn eftir internettengingu gegn gervihnetti sé gífurlega mikil og að bæði Starlink og Kuiper geti blómstrað.
Amazon SpaceX Bandaríkin Tækni Tengdar fréttir Annað Starship sprakk í loft upp Annað tilraunaskot Starship-geimskips SpaceX í röð misheppnaðist í gærkvöldi. Geimskipið sprakk skömmu eftir geimskotið og dreifðist brakið úr því í háloftunum yfir Flórída og Karíbahafinu þar sem það brann, með tilheyrandi sjónarspili. 7. mars 2025 10:35 Ný eldflaug Bezos náði á sporbraut í fyrstu tilraun Blue Origin, geimferðafyrirtæki auðjöfursins Jeffs Bezos, sendi í morgun geimfar á braut um jörðu í fyrsta sinn, nærri því aldarfjórðungi eftir að fyrirtækið var stofnað. Það var gert með eldflauginni New Glenn eftir að fyrsta geimskoti hennar hafði ítrekað verið frestað. 16. janúar 2025 10:14 Auðjöfur og einkageimfari mun stýra NASA Donald Trump, verðandi forseti Bandaríkjanna, tilkynnti í kvöld að hann ætlaði að tilnefna auðjöfurinn Jared Isaacman sem yfirmann Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA). Auðjöfurinn hefur verið viðloðinn geimiðnað Bandaríkjanna og fór meðal annars í fyrstu borgaralegu geimgönguna, fyrr á þessu ári. 4. desember 2024 21:15 Mest lesið Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Viðskipti erlent Markaðurinn tók tíðindunum vel Viðskipti innlent Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Viðskipti innlent Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Viðskipti innlent Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Viðskipti innlent Boða skattheimtu á fjármálafyrirtæki án útfærslu Viðskipti Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Viðskipti innlent Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Viðskipti innlent Göngugreining getur leyst stoðkerfisverki Samstarf Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira
Annað Starship sprakk í loft upp Annað tilraunaskot Starship-geimskips SpaceX í röð misheppnaðist í gærkvöldi. Geimskipið sprakk skömmu eftir geimskotið og dreifðist brakið úr því í háloftunum yfir Flórída og Karíbahafinu þar sem það brann, með tilheyrandi sjónarspili. 7. mars 2025 10:35
Ný eldflaug Bezos náði á sporbraut í fyrstu tilraun Blue Origin, geimferðafyrirtæki auðjöfursins Jeffs Bezos, sendi í morgun geimfar á braut um jörðu í fyrsta sinn, nærri því aldarfjórðungi eftir að fyrirtækið var stofnað. Það var gert með eldflauginni New Glenn eftir að fyrsta geimskoti hennar hafði ítrekað verið frestað. 16. janúar 2025 10:14
Auðjöfur og einkageimfari mun stýra NASA Donald Trump, verðandi forseti Bandaríkjanna, tilkynnti í kvöld að hann ætlaði að tilnefna auðjöfurinn Jared Isaacman sem yfirmann Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA). Auðjöfurinn hefur verið viðloðinn geimiðnað Bandaríkjanna og fór meðal annars í fyrstu borgaralegu geimgönguna, fyrr á þessu ári. 4. desember 2024 21:15