„Ég er smá í móðu“ Valur Páll Eiríksson skrifar 29. apríl 2025 20:11 Elín Klara Þorkelsdóttir réði úrslitum í kvöld og skoraði ellefu af 25 mörkum Hauka. vísir/Hulda Margrét Elín Klara Þorkelsdóttir réði enn og aftur úrslitum í leik Hauka sem vann 25-24 sigur á Fram í undanúrslitum Olís-deildar kvenna í handbolta í kvöld. Hún skoraði 11 mörk, þar á meðal markið sem réði úrslitum. „
Ég er ótrúlega stolt af liðinu eftir þennan leik. Ég er smá í móðu núna beint eftir þetta, þetta var hnífjafnt í lokin en við sýndum góða liðsheild að klára þetta,“ segir Elín Klara eftir leik. Elín Klara fiskaði víti fyrir Hauka á mikilvægum tímapunkti. Liðið var einu marki yfir þegar 40 sekúndur voru eftir, hún brunaði í gegn, fékk vítið og steinlá. Einhver velti fyrir sér hvort hún hefði heilsu til að taka vítið eftir byltuna. „Kannski. Ég fékk aðeins í bakið, en við þurftum að klára þetta. Maður er einhvern veginn alltaf í jörðinni og það bara fylgir þessu. Ég er kannski orðin svolítið vön því. Ég var með í hausnum í hálfleik en það fór bara. Ég náði að gleyma mér,“ segir Elín Klara sem fékk nokkrar vænar byltur í leiknum. Markið af vítalínunni var það 25. í leiknum og kom Haukum tveimur yfir. Fram skoraði sárabótarmark í lokin en eins marks sigur staðreynd og Haukar komnir í 2-0 eftir að hafa unnið óvenjustóran tólf marka sigur í fyrsta leik. „Maður þarf að hafa fyrir þessu, við bjuggumst ekki við þessu í fyrsta leik og vissum að þessi yrði mun erfiðari. En við gíruðum okkur upp í það,“ segir Elín. Haukar þurfa aðeins einn sigur til að klára einvígið en Fram með bakið upp við vegg. „Það verður ennþá erfiðari leikur. Þær vilja væntanlega ekki fara í sumarfrí. Þetta verður mjög erfitt fyrir okkur og kúnst að mæta í næsta leik. En ég vil sjá aftur fulla höll, það var geggjuð stemning hérna,“ segir Elín Klara.
Haukar Olís-deild kvenna Handbolti Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Íslenski boltinn „Ég verð að spila“ Enski boltinn Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Fótbolti Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Körfubolti Fleiri fréttir „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Sjá meira