Ætla að nýta reiðina í Meistaradeildinni Ágúst Orri Arnarson skrifar 4. maí 2025 09:01 Mikel Arteta fór ekki leynt með tilfinningar sínar eftir leik, en ætlar að nýta þær til góðra verka. James Gill - Danehouse/Getty Images Arsenal tapaði í fyrsta sinn á heimavelli gegn Bournemouth í gær. Tap sem Skytturnar þurfu ekki á að halda fyrir seinni undanúrslitaleikinn gegn PSG í Meistaradeildinni á miðvikudag, en ætla að nýta sér til góðs. „
Þetta skapaði ekki skriðþunga sem við getum tekið með okkur í næsta leik, alls ekki. Þetta skapaði reiði, pirring, bræði og vonbrigði. Við ætlum að nota þetta allt saman á miðvikudaginn, við verðum að gera það“ sagði þjálfarinn Mikel Arteta á blaðamannafundi eftir leik. Arsenal komst yfir í leiknum gegn Bournemouth í gær, en missti niður forystuna og tapaði leiknum. Þetta var í fjórða sinn í síðustu fimm deildarleikjum sem liðið lendir í því, kemst yfir en vinnur ekki. Bæði mörk Bournemouth komu upp úr föstum leikatriðum, löngu innkasti og hornspyrnu, en Arsenal hefur fengið á sig flest mörk úr föstum leikatriðum af öllum liðum í deildinni. Arsenal á ekki möguleika á Englandsmeistaratitlinum, Meistaradeildin er eini möguleiki liðsins á að handleika málm, en PSG er 0-1 yfir í einvíginu eftir fyrri leikinn. Þá er sá möguleiki enn fyrir hendi að liðið missi af Meistaradeildarsæti í ensku úrvalsdeildinni. „Við eigum óunnið verk fyrir höndum, við erum ekki búnir að tryggja Meistaradeildarsæti. Við erum ekki búnir að tryggja okkur annað sætið, þannig að við höfum verk að vinna“ sagði Arteta.
Enski boltinn Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn „Hann sagði já takk“ Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Sjá meira