Real Madrid vill fara í viðræður við Liverpool um Trent Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. maí 2025 06:32 Trent Alexander-Arnold fagnar sigurmarki sínu á móti Leicesterr City en þetta gæti verið síðasta mark hans fyrir félagið. Getty/Liverpool FC Trent Alexander-Arnold yfirgefur Liverpool þegar samningur hans rennur út í lok júní og fer til Real Madrid á frjálsri sölu. Spænska stórliðið vill þó fá hann fyrr og vill nú viðræður við foráðamenn Liverpool.
Samþykki Liverpool það þá gæti félagið fengið einhverja lágmarksgreiðslu frá Real Madrid en sú upphæð verður þó aldrei mjög há. Staðreyndin er sú að liðið er að missa uppalinn leikmann á besta aldri án þess að fá eitthvað af viti fyrir hann. ESPN hefur heimildir fyrir því að Real Madrid vilji endilega þessar viðræður en það standi svolítið og falli með áhuga Liverpool sem hefur verið enginn hingað til. Real Madrid hefur verið í viðræðum við fulltrúa Alexander-Arnold um samning í marga mánuði og það á bara eftir að ganga frá nokkrum lausum endum. Alexander-Arnold er sagður hafa áhuga á því að komast fyrr til Real Madrid og taka þátt í heimsmeistarakeppni félagsliða í sumar. Liverpool er búið að tryggja sér Englandsmeistaratitilinn og hefur að engu að keppa í síðustu leikjum tímabilsins. Samkvæmt frétt ESPN þá telja forráðamenn Real Madrid að það gæti hjálpað Alexander-Arnold að komast fyrr inn í hlutina hjá Real verði hann með liðinu á HM í Bandaríkjunum. Real Madrid mætir Al Hilal, Pachuca og Salzburg í riðli sínum er leikirnir í riðlakeppninni fara fram frá 18. júní til 26. júní.
Enski boltinn Spænski boltinn Mest lesið „Var líklegur í að hoppa í ána og segja að þetta sé búið“ Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Íslenski boltinn Fleiri fréttir Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Sjá meira