Vindur, skúrir og kólnandi veður Atli Ísleifsson skrifar 8. maí 2025 07:11 Hiti verður á bilinu fimm til fimmtán stig í dag. Vísir/Vilhelm Víðáttumikil hæð yfir Skotlandi og lægð við suðausturströnd Grænlandi valda suðvestanátt á landinu í dag og má búast við strekkingsvindi og skúrum. Yfirleitt verður þó þurrt norðaustanlands.
Á vef Veðurstofunnar segir að reikna má með hita á bilinu fimm til fimmtán stig, hlýjast á Norðaustur- og Austurlandi. Það kólnar þó heldur í kvöld. „Í kvöld og nótt er orðið það svalt að úrkoma verður smám saman slyddukendari og él á fjallvegum, einkum norðvestantil. Á morgun, föstudag verður ívið hvassari vindur með skúra- eða éljahryðjum nokkuð víða, þótt á láglendi verði þetta mest skúrir. Um norðaustanvert landið helst úrkomulaust að mestu. Þetta veðurlag helst síðan væntanlega áfram út morgundaginn til laugardagsmorguns og gera má ráð fyrir versnandi aksturskilyðrum á Vesturlandi, Vestfjörðum, Ströndum og Norðvesturlandi, þar sem dimm él ganga yfir og hálkublettir myndast, einkum á fjallvegum. Ökumenn, sem komnir eru á sumahjólbarða, eru því hvattir til að fresta ferðalögum milli landshluta ef mögulegt er meðan veðrið gengur yfir. Um helgina dregur smám saman úr vindi og úrkomu og hiti fer að þokast upp á við á ný,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Suðvestan 10-18 m/s, skúrir eða él og hiti 2 til 7 stig. Þurrt að kalla norðaustanlands með hita að 12 stigum. Á laugardag: Suðvestlæg átt, 5-13 m/s og dálítil él eða skúrir, en bjartviðri austanlands. Áfram fremur svalt í veðri. Á sunnudag: Suðvestanátt, skýjað með köflum og úrkomulítið, en léttskýjað eystra. Hiti 7 til 13 stig yfir daginn. Á mánudag, þriðjudag og miðvikudag: Suðlæg átt og víða skýjað með köflum. Hlýnandi veður.
Veður Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Gætu orðið hressilegar dembur inn til landsins Skýjað að mestu og hæg norðlæg eða breytileg átt Rigning og skúrir víða um land Bætir í úrkomu eftir hádegi Spáð hlýju veðri norðaustantil Víða skúrir en allt að tuttugu stigum austanlands Stinningskaldi og súld suðvestanlands Blaut og vindasöm Menningarnótt í vændum Lægðardrag fikrar sig nær og bætir í úrkomu í nótt og á morgun Bjart að mestu í dag en lægð nálgast á morgun Bjartviðri í flestum landshlutum Bjart og sólríkt víðast hvar Allt að nítján stiga hiti í dag Bjart víðast hvar á landinu í dag Veður með rólegasta móti um helgina Norðanáttin ríkjandi og hiti að tuttugu stigum sunnantil Allmikil lægð þokast norðaustur Litlar líkur á skýjahulan brotni en líklegast norðvestantil Hiti að átján stigum Bjart og milt í dag og allt að nítján stiga hiti Sjá meira