Ásgeir Sigurvinsson sjötugur í dag Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. maí 2025 13:02 Ásgeir Sigurvinsson og Diego Maradona í úrslitum Evrópukeppni félagsliða 1989. Einn fremsti fótboltamaður sem Ísland hefur alið, Ásgeir Sigurvinsson, fagnar stórafmæli í dag. Hann er sjötugur.
Árið 2008 var Ásgeir kosinn besti fótboltamaður Íslands fyrr og síðar. Hann var valinn Íþróttamaður ársins 1974 og 1984. View this post on Instagram A post shared by Knattspyrnusamband Íslands (@footballiceland) Ásgeir hóf ferilinn með ÍBV en gekk í raðir Standard Liege í Belgíu 1973. Þar lék hann í átta ár og varð bikarmeistari með liðinu 1981. Eftir það keypti þýska stórliðið Bayern München Ásgeir. Hann lék í eitt tímabil með Bayern og varð bikarmeistari með liðinu áður en hann fór til Stuttgart 1982. Þar lék hann út ferilinn, til 1990. Ásgeir varð Þýskalandsmeistari með Stuttgart 1984 og var valinn besti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar. Stuttgart komst einnig í úrslit Evrópukeppni félagsliða 1989 þar sem liðið tapaði fyrir Diego Maradona og félögum í Napoli. Ásgeir lék 45 leiki fyrir íslenska landsliðið á árunum 1972-89 og skoraði fimm mörk. Eftir að ferlinum lauk starfaði Ásgeir hjá Stuttgart og stýrði svo Fram tímabilið 1993. Hann þjálfaði síðan íslenska landsliðið ásamt Loga Ólafssyni á árunum 2003-05.
Fótbolti Þýski boltinn Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Þjálfari Hákons grét eftir leik Fótbolti Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Fleiri fréttir Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákons grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Sjá meira