Lífið

Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Skvísur landins tóku yfir stjörnulíifð þessa vikuna.
Skvísur landins tóku yfir stjörnulíifð þessa vikuna.

Liðin vika var lífleg og viðburðarrík hjá stjörnum landsins þar sem skemmtanalífið var með líflegasta móti. Mæðradagurinn var haldinn hátíðlegur í gær og voru Íslendingar duglegir að senda kveðjur á mæður sínar. Þá stóð Bakgarðshlaupið yfir um helgina og lauk í morgun.

Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.


Mæðradagurinn

Tónlistarmaðurinn Herra Hnetusmjör birti mynd af kærustu sinni og barnsmóður, Söru Linneth, í tilefni dagsins.

Brynja Dan Gunnarsdóttir birta einnig fallega færslu í tilefni dagsins.

Jóhanna Helga Jensdóttir, áhrifavaldur og útvarpskona, var með fullt fangið af krúttum á mæðradaginn.

Jón Gnarr birti hjartnæma færslu í minnigu móður sinnar.

Ástrós Traustadóttir, áhrifavaldur og raunveruleikstjarna, segir ekkert betra en að móðurhlutverkið.

Bakgarðshlaupið

Bakgarðshlaupið byrjaði á laugardagsmorgun og lauk nú í morgun. Kristinn Gunnar Kristinsson sigraði hlaupið eftir að hlaupið 42 hringi, eða 281,4 kílómetra. Í þarsíðasta Bakgarðshlaupi hljóp hann 38 hringi og bætti því sitt persónulega met um fimm hringi um helgina.

Hlaupadrottningin Mari Jaersk hafnaði í 2. sæti.

Hestaskvísur

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir fór með góðum hópi kvenna í hestaferð.

Út á lífið!

Lana Björk Kristinsdóttir, eigandi lífstílsmerkisins Kenzen, fór út á lífið í Dubai.

Konungleg heimsókn

Hjónin Andrea Röfn Jónasdóttir og Arnór Ingvi Traustason fóru í galakvöldvörð hjá sænsku konungshjónunum í Stokkihólmi.

Póskort frá Mexíkó

Sunneva Einars áhrifavaldur birti myndir frá ferðalagi hennar og unnustans til Mexíkó á dögunum.

Lífið hjá Laufeyju

Laufey Lín Jónsdóttir birti skemmtilega myndasyrpu.

 

Upprennandi listakona

Fyrirsætan Birta Abiba fór í myndlistartíma. 

Nýtt bikiní!

TikTik-stjarnan Brynhildur Gunnlaugs pósaði í nýjum sundfötum frá Aurora.

Notalegt í lóninu

Guðrún Svava Egilsdóttir, eða Gugga í gúmmíbát, fór í Bláa lónið í vikunni.

Liðnir dagar

Svona voru síðastliðnir dagar hjá áhrifavaldinum Guðrúnu Sortveit.

Nýtt lag!

Tónlistartvíeykið Júlí Heiðar og Ragga Holm gáfu út nýjan sumarsmell.

Skvísur í stóra eplinu

Vinkonurnar og eigendur Reykjavík Makeup School, Heiður Ósk Eggertsdóttir og Ingunn Sigurðardóttir, brostu sínu breiðasta eftir skemmtilega viðskiptaferð til New York.

Afmælisgleði

Tískudrottningin Elísabet Gunnars fagnaði 38 ár afmæli sínu í vikunni.

Litríkar í sólinni

Athafnakonan Móeiður Lárusdóttir, fór út á lífið í Grikklandi.


Tengdar fréttir

Stjörnulífið: Drottningar á Bessastöðum

Maímánuður er genginn í garð með tilheyrandi gleði og hækkandi sól. Stjörnur landsins skinu skært í vikunni, hvort sem það var í boði á Bessastöðum, á auglýsingaskiltum erlendis eða á hlaupum í utanvegahlaupinu Puffin Run í Vestmannaeyjum. 

Stjörnulífið: Kossaflens og Inga Lind ástfangin á Spáni

Sumarið gekk formlega í garð síðastliðinn fimmtudag og heiðraði landsmenn með sólríkum degi. Stjörnur landsins skinu skært um helgina hvort sem það var í miðborg Reykjavíkur eða á ferðalögum erlendis. Þá er skemmtanalífið farið að færast í aukana með hækkandi sól og hitastigi.

Stjörnulífið: Frumsýnir kærastann á Tenerife

Páskarnir eru nú að baki og voru fylltir súkkulaðiáti, sólarsælu og öðrum notalegheitum. Stjörnur landsins nutu hátíðarinnar til hins ýtrasta eins og þeim einum er lagið, hvort sem það var í fríi erlendis, á skíðum fyrir norðan eða í veðurblíðunni í borginni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.