Þjálfari Íslendingaliðsins hné niður í úrslitaleiknum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. maí 2025 07:32 Christian Berge hefur gert Kolstad að norskum meisturum þrjú ár í röð. getty/Igor Kralj Íslendingaliðið Kolstad varð í gær norskur meistari í handbolta karla. Þjálfari liðsins hné niður á hliðarlínunni í seinni hálfleik í leiknum gegn Elverum.
Kolstad sigraði Elverum, 31-28, á heimavelli í gær. Kolstad vann einvígi liðanna, 2-0, og varð Noregsmeistari þriðja árið í röð. Fimm Íslendingar leika með Kolstad. Þegar tólf mínútur voru liðnar af seinni hálfleik hné Christian Berge, þjálfari Kolstad, niður á hliðarlínunni. Þögn sló á þá sex þúsund áhorfendur í Trondheim Spektrum. VG greinir frá því að Berge sé með gáttatif sem lýsir sér í óreglulegum og hröðum hjartslætti. Þjálfarinn missti stjórn á líkamanum og gera þurfti nokkurra mínútna hlé á leiknum meðan hugað var að honum. Eftir leikinn sagði framkvæmdastjóri Kolstad, Jostein Sivertsen, að Berge væri í lagi en hefði ekki viljað taka þátt í fagnaðarlátum liðsins. Sigvaldi Guðjónsson, fyrirliði Kolstad, skoraði þrjú mörk í leiknum í gær. Sveinn Jóhannsson gerði tvö mörk, Benedikt Gunnar Óskarsson eitt en Arnór Snær, bróðir hans, var ekki á meðal markaskorara. Markvörðurinn Sigurjón Guðmundsson leikur einnig með Kolstad.
Norski handboltinn Mest lesið Björk segir öllum þjálfurum upp Sport Ísland - Sviss | Allt undir hjá ungu strákunum okkar Fótbolti Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Handbolti Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Handbolti City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Enski boltinn Átti aldrei að geta hlaupið aftur en vann Bakgarðinn Sport Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Íslenski boltinn Leikdagur í Lúx: Rodrigues er fífl Fótbolti Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Enski boltinn Arnar fái silkihanskameðferð: „Um hvað ertu að tala?“ Fótbolti Fleiri fréttir Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Minden keypti Erling af ÍBV Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Baldur Fritz markahæstur í sigri Kristianstad Haukur náði að hefna sín á Reyni Þór Stórbrotin varsla Grétars tryggði Haukum montréttinn: „Endar alltaf í svona vitleysu“ „Ég verð augljóslega að taka þetta tap alfarið á mig“ „Við erum Haukar og við horfum alltaf bara á toppinn“ Uppgjörið: FH - Haukar 34-35 | Haukar á toppnum og Hafnarfjörður er rauður Sigurður Dan skellti í lás og Stjarnan valtaði yfir Fram Lygilegt sigurmark HK í Vestmannaeyjum Dregið í bikarnum: Meistararnir fá gesti úr Garðabæ „Meira en tvö stig undir“ Garðar Ingi með þrjú mörk og Ómar og Gísli flugi áfram Reynir Þór hafði betur gegn Hauki í framlengdum leik Einar verulega ósáttur: „Mér finnst þetta bara galin ummæli“ Jóhanna um landsliðið: „Auðvitað er það svekkjandi“ Reynir vann Íslendingana sem tapa nánast aldrei Haukar - Valur 28-24 | Stórleikur Jóhönnu og Haukar með fullt hús stiga 33 mörk í tveimur leikjum: Mætti á æfingar og leiki með pabba ÍR vann öruggan sigur og ÍBV tók Selfoss Fram og Stjarnan unnu bæði Þorsteinn Leó frá í 8-12 vikur Stórsigur hjá Magdeburg og svekkjandi jafntefli í Danmörku ÍBV beið eftir betra veðri og sótti sigur Reynir Þór og félagar töpuðu með einu marki í mikilli dramatík Í skýjunum með dönsku nýlenduna í Þorpinu Sjá meira