Körfubolti

Eru klár­lega með gæði til að spila í efstu deild Þýska­lands

Aron Guðmundsson skrifar
Orri Gunnarsson og Hilmar Smári Henningsson kampakátir eftir að hafa landað Íslandsmeistaratitlinum í Síkinu.
Orri Gunnarsson og Hilmar Smári Henningsson kampakátir eftir að hafa landað Íslandsmeistaratitlinum í Síkinu. Vísir/Hulda Margrét

Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Stjörnunnar, getur ekki sagt til um það á þessum tímapunkti hvort lykilleikmenn Íslandsmeistaraliðsins, Orri Gunnarsson og Hilmar Smári Henningsson verði á mála hjá liðinu á næsta tímabili. Þeir séu báðir með gæði til að spila í sterkri deild úti í heimi, til að mynda efstu deild Þýskalands.

Stjarnan tryggði sér sinn fyrsta Ís­lands­meistara­titil eftir sigur gegn Tindastól í odda­leik úr­slita­ein­vígis Bónus deildarinnar í Síkinu á dögunum og það á sínu fyrsta tímabili undir stjórn Baldurs Þórs.

Aðspurður hvað hann hafi komið með að borðinu sem lagði grunninn að atlögunni að Íslandsmeistaratitlinum hafði Baldur þetta að segja:

„Við náttúrulega breytum leikmannahópnum mikið. Kjarninn breytist og við fáum inn uppalinn Stjörnumann í Orra sem kemur inn með hjarta sem og Viktor Lúðvíks og erum með leikmenn á borð við Ægi og Hlyn í kringum þá. Svo kemur Hilmar Smári inn, frábær leikmaður.

Við Hilmar Smára segi ég: „það er enginn Bandaríkja- eða atvinnumaður að fara vera ofan í þér. Þú ert bara að fara vera skorarinn í liðinu“ og ég stóð við það. Tók bara rulluspilara í kringum þá, gaf Orra og Hilmari Smára pláss til að mótast og leiða. Shaquille Rombley og Jase Febres gerðu sín hlutverk mjög vel.

Svo voru leikmenn eins og Júlíus Orri, Kristján Fannar og fleiri sem þurftu að fara í öðruvísi hlutverk. Við áttum bara heiðarleg samtöl varðandi það og þeir ákváðu að kýla á það. Liðsheildin, hlutverkaskipanin, viljinn og allt small.“

Orri og Hilmar Smári gengu til liðs við Stjörnuna fyrir tímabilið eftir að hafa varið tíma í háskólaboltanum í Bandaríkjunum. Innkoma þeirra og frammistaða á tímabilinu áttu stóran þátt í þessum Íslandsmeistaratitli Stjörnunnar og ítrekað sýndu þeir fram á gæði sinnar spilamennsku.

Það er ljóst að leikur þeirra er á þannig gæðastigi að þeir gætu hæglega tekið skrefið út í atvinnumennskuna, býst Baldur við því að halda þeim í Stjörnutreyjunni?

„Ég bara veit það ekki. Núna erum við bara í því að njóta stundarinnar. Svo þurfum við að setjast niður og ræða þessi mál. Það verður bara að koma í ljós.“

En þú hlýtur bara, með þínum þjálfara augum, hlýtur að vera sammála því að vona gæðamiklir leikmenn eiga heima í stórum deildum úti í heimi?

„Þeir geta klárlega verið atvinnumenn í útlöndum. Spilað í efstu deild í Þýskalandi svo dæmi sé tekið. Eru klárlega með gæði í það.“


Tengdar fréttir

Utan vallar: Í reykjarmekki alsælunnar

Einum lengsta og magnaðasta ferli íslensks íþróttamanns lauk í gær þegar Stjarnan varð Íslandsmeistari eftir sigur á Tindastóli í oddaleik á Sauðárkróki. Hlynur Bæringsson setti þar punktinn aftan við tæplega þrjátíu ára meistaraflokksferil sem fékk draumaendi í gini úlfsins.

„Kemur væntan­lega risastórt tómarúm“

„Ferillinn er stolt. Ferillinn er vonbrigði og eftirsjá vegna þess sem ég hefði getað gert betur. Tekið betri ákvarðanir. En ég er stoltur og glaður að hafa farið í þetta. Flestir af þeim sem ég þekki í dag eru tengdir körfubolta. Ég á ofboðslega góðar minningar af þessum ferli.“

„Körfuboltaguðirnir voru búnir að ákveða“

Benedikt Guðmundsson var gríðarlega sár og svekktur eftir tap Tindastóls gegn Stjörnunni í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn. Hann segir liðið hafa lagt sig vel fram en klikkað á allt of mörgum mikilvægum skotum. Spurningum um framtíðina var hann ekki tilbúinn að svara.

„Þakka Guði fyrir að leyfa mér að upplifa þetta“

„Alsæla. Ég á hreinlega ekki orð“ sagði Íslandsmeistarinn Hlynur Bæringsson eftir sigur í oddaleik gegn Tindastóli. Þetta var hans síðasti leikur á löngum ferli, sem endar með fyrsta Íslandsmeistaratitli í sögu Stjörnunnar.

Ægir valinn verðmætastur

Ægir Þór Steinarsson, fyrirliði Stjörnunnar, var valinn verðmætasti leikmaður úrslitakeppninnar en vaggaði fingri þegar hann tók við verðlaununum.

Shaq segist hundrað prósent

Shaquille Rombley, miðherji Stjörnunnar, sést hita upp með liðinu í aðdraganda oddaleiksins og er skráður á leikskýrsluna í leiknum gegn Tindastóli sem fer fram í Síkinu í kvöld. Hann staðfesti í viðtalið við Andra Má Eggertsson að hann væri klár í slaginn í kvöld. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×