Dagur Árni fetar í fótspor pabba síns Sindri Sverrisson skrifar 5. júní 2025 10:10 Dagur Árni Heimisson tekur í spaðann á nýjum þjálfara karlaliðs Vals, Ágústi Jóhannssyni. Valur Handknattleiksdeild Vals hefur tryggt sér krafta eins allra efnilegasta leikmanns landsins því hinn 18 ára gamli Dagur Árni Heimisson hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið.
Dagur Árni hefur þrátt fyrir ungan aldur verið algjör lykilmaður í liði KA og skoraði hann 132 mörk fyrir liðið á síðustu leiktíð í Olís-deildinni. Þá er hann einn af lykilmönnum U19-landsliðs Íslands sem spilar í lokakeppni HM í ágúst. Hann var valinn í úrvalsliðið á EM í fyrrasumar þegar Ísland endaði í 4. sæti. Óhætt er að segja að Dagur Árni sé úr mikilli handboltafjölskyldu því mamma hans er Martha Hermannsdóttir og pabbi hans Heimir Örn Árnason, sem bæði léku um langt árabil í efstu deild hér á landi og eiga einnig að baki landsleiki. Heimir spilaði einmitt með Val á sínum tíma, við góðan orðstír. Dagur Árni er fyrsti nýi leikmaðurinn sem Valur kynnir til leiks eftir að Ágúst Jóhannsson tók við sem þjálfari karlaliðs félagsins: „Ég er gríðarlega ánægður með að fá Dag Árna til liðs við félagið. Hann er ungur og mjög efnilegur leikmaður með mikla hæfileika og frábært viðhorf. Hann getur náð mjög langt en um leið þurfum við að gefa honum tíma til að aðlagast hjá félaginu og um leið þeim breytingum sem því fylgir að flytja á milli landshluta. Ég hlakka til samstarfsins við hann líkt og aðra leikmenn liðsins,“ sagði Ágúst.
Olís-deild karla Valur KA Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Góður sigur Stjörnunnar á meisturunum Fótbolti Á sársaukafullar minningar af HM Íslenski boltinn Fleiri fréttir Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Sjá meira