Tók við verðlaunum merktur Aroni sem var veikur heima Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 8. júní 2025 18:23 Bjarki Már passar vel upp á medalíuna fyrir Aron. Skjáskot/Livey Aron Pálmarsson, einn besti handboltamaður Íslandssögunnar, var fjarri góðu gamni þegar lið hans, Veszprém, tryggði sér ungverska meistaratitilinn í handbolta í dag.
Óhætt er að segja að Aron hafi misst af því sem hefði átt að vera ein hans stærsta stund á handboltaferlinum. Oddaleikur um ungverska meistaratitilinn, og það sem stærra er, lokaleikurinn á glæstum handboltaferli Arons. Örlögin réðu því hins vegar að Aron gat ekki verið með í dag. Aron var veikur og gat því ekki tekið þátt í leiknum, né verið viðstaddur til að taka við verðlaununum eftir að titillinn var í höfn. Máltækið „ber er hver að baki nema sér bróður eigi“ á þó líklega vel við eftir þennan leik því Bjarki Már Elísson, liðsfélagi og herbergisfélagi Arons í íslenska landsliðinu, leikur einnig með Veszprém. Bjarki var að vísu utan hóps í oddaleiknum í dag, en var að sjálfsögðu viðstaddur á verðlaunaafhendingunni. Þegar nafn Arons var kallað upp var Bjarki fljótur að mæta á svæðið og taka við verðlaununum fyrir félaga sinn, klæddur í treyju númer 44, merkt „Palmarsson“. Það má því gera ráð fyrir því að Bjarki komi medalíunni til skila næst þegar þeir félagar hittast, en myndbrot af Bjarka taka við verðlaununum má sjá hér fyrir neðan. Myndefnið er frá Livey. Klippa: Bjarki tekur við verðlaununum hans Arons
Ungverski handboltinn Tengdar fréttir Aron og Bjarki ungverskir meistarar á kostnað Janusar Aron Pálmarsson og Bjarki Már Elísson eru ungverskir meistarar í handbolta eftir að Veszprém vann þriggja marka sigur gegn Pick Szeged í oddaleik um titilinn í dag. 8. júní 2025 17:40 Mest lesið Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Joshua kjálkabraut Paul Sport Gagnrýndi Paul: „Beið eftir að verða sleginn“ Sport Slot fámáll um stöðuna á Isak Enski boltinn Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Rekinn af HM eftir að hafa fallið á lyfjaprófi Sport Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Enski boltinn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Enski boltinn Fleiri fréttir Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Geggjaðar Eyjakonur á toppinn Þorsteinn Leó að ná sér „langt á undan áætlun“ Birtu tölvupóst þar sem efast er um heilsu forseta IHF Valdi ekki eigin leikmann í landsliðið Halda Orra og Sporting engin bönd Viktor Gísli stóð vaktina er fullkomið gengi Börsunga hélt áfram Snorri kynnir EM-fara í vikunni Mega handvelja lið utan Evrópu inn í Meistaradeildina EM ekki í hættu Sjá meira
Aron og Bjarki ungverskir meistarar á kostnað Janusar Aron Pálmarsson og Bjarki Már Elísson eru ungverskir meistarar í handbolta eftir að Veszprém vann þriggja marka sigur gegn Pick Szeged í oddaleik um titilinn í dag. 8. júní 2025 17:40