Ragga Gísla er borgarlistamaður Reykjavíkur Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 17. júní 2025 14:47 Tónlistarkonan Ragnhildur Gísladóttir var útnefnd borgarlistamaður við hátíðlega athöfn í Höfða í dag. Róbert Reynisson Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri útnefndi í dag Ragnhildi Gísladóttur tónlistarkonu, borgarlistamann Reykjavíkur 2025 við hátíðlega athöfn í Höfða.
Frá þessu er greint í fréttatilkynningu en hefð er fyrir því að útnefningin fari fram á 17. júní. Útnefningin er heiðursviðurkenning til listamanns sem með listsköpun sinni hefur skarað fram úr og markað sérstök spor í íslensku listalífi. Fram kemur að valnefndin hafi verið einhuga um að útnefna einstakling sem hefði sýnt fordæmi í því að fylgja sinni eigin sannfæringu í list og lífi. Ragnhildi var á athöfninni veittur ágrafinn steinn, heiðursskjal og verðlaunafé og við athöfnina fluttu Bryndís Jakobsdóttir, dóttir Ragnhildar, og Lay Low tónlist úr smiðju Ragnhildar. Árið 2012 hlaut Ragnhildur riddarakross Hinnar íslensku fálkaorðu fyrir framlag sitt til íslenskrar tónlistar. Í fréttatilkynningunni er gerð grein fyrir störfum og afrekum Ragnhildar í gegnum tíðina. „Brautryðjandi og fyrirmynd“ Ragnhildur Gísladóttir fæddist í Reykjavík 7. október 1956. Hún útskrifaðist sem tónmenntakennari frá Tónlistarskólanum í Reykjavík, lauk B.A.-prófi í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands árið 2008 og M.A.-prófi frá sama skóla árið 2013. Hún hóf tónlistarferilinn snemma og hefur áratugum saman heillað með sínum kraftmikla söng, ríkulegri túlkun og tilfinningaríkum flutningi. Með lagasmíðum sínum og sterkri nærveru hefur hún sett mark sitt á íslenskt menningarlíf á ýmsan hátt og er óumdeilanlega með þekktustu og ástsælustu nöfnum íslenskrar dægurtónlistar. Ferill Ragnhildar spannar fjölbreytt verk og samstarf við mörg af stærstu nöfnum íslenskrar tónlistar. Hún var söngkona í hljómsveitunum Brunaliðinu, Grýlunum og Stuðmönnum og hefur leikið í mörgum kvikmyndum, til dæmis Með allt á hreinu og Ungfrúin góða og húsið. Þá er hún afkastamikið tónskáld, hefur meðal annars samið fyrir kvikmyndir, dans og leikhús og tekið þátt í ýmsum menningarhátíðum, svo sem Myrkum músíkdögum, Nordic Music Days og Reykjavík Dance Festival. „Ragga Gísla, eins og hún er iðulega kölluð, hefur lengi verið brautryðjandi í íslensku tónlistarlífi, ekki síst fyrir kynslóðir íslenskra söngkvenna. Margar ungar konur í tónlist og á fleiri sviðum mannlífsins nefna Ragnhildi sem innblástur og fyrirmynd. Hún hefur hvatt þær til að finna sinn tón og standa með því sem skiptir þær máli,“ segir loks í tilkynningunni.
Tónlist Menning Reykjavík 17. júní Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Lífið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Taskmaster Ísland snýr aftur Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Ekkert offors hjá Fors Lífið Fleiri fréttir Menningarsprautur í hvísluleik Kát á kynfræðslukarnivali Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Ástfangin pör á Djöflum Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira