Innlent

Á­kvörðun sak­sóknara gefi undar­leg skila­boð

Bjarki Sigurðsson skrifar
Drífa Snædal er talskona Stígamóta.
Drífa Snædal er talskona Stígamóta. Vísir/Vilhelm

Talskona Stígamóta segir það furðuleg skilaboð að ríkissaksóknari staðfesti ákvörðun um að ákæra ekki menn sem nauðguðu fatlaðri konu fyrir tilstilli yfirmanns hennar. Mál sem þetta grafi undan trausti til réttarkerfisins. 

Sigurjón Ólafsson verslunarmaður var í byrjun árs dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að nauðga konunni og láta fimm aðra menn sem hann kynntist á stefnumótavefsíðu hafa samræði við hana án þess að konan vildi það.

Lögreglu tókst að bera kennsl á fjóra af mönnunum fimm en héraðssaksóknari ákvað að ákæra þá ekki þar sem málin þættu ekki líkleg til sakfellingar. Í morgun greindi fréttastofa svo frá því að Ríkissaksóknari hafi staðfest þessa ákvörðun.

Drífa Snædal, talskona Stígamóta, segir málið staðfesta að saksóknari og dómskerfið í heild sinni standi ekki endilega með konum.

„Þetta gefur mjög undarleg skilaboð um hvernig megi misnota konur í hvaða tilgangi. Mér finnst alveg augljóst þarna, því við erum með lög sem segja að það þurfi samþykki, að hún hafi ekki veitt samþykki. Hún hefur verið undir hælnum á manni sem stýrði henni gjörsamlega,“ segir Drífa.

„Þessir menn hafa ekki leitast eftir samþykki. Þeir eru ekki í samskiptum við hana sjálfa, og þá er spurning hvort það sé í lagi? Er saksóknari að segja að það sé í lagi og ekki refsivert að leita ekki samþykkis. Það er andstætt lögum sem við erum sem betur fer komin með í dag. Það þarf raunverulega samþykki fyrir kynmökum, annars er það nauðgun.“ 

Það að Sigurjón sé dæmdur fyrir að leyfa öðrum að misnota hana en mennirnir ekki ákærðir fyrir að misnota hana sé einkennilegt.

„Þegar koma svona undarlegir úrskurðir og misvísandi, eins og í þessu tilviki, er eins gott að gera grein fyrir því hvers vegna þetta er svona misvísandi. Því þetta fjallar líka um traust til réttarkerfisins og hvort nauðgunarþolendum sé óhætt að sækja réttlæti til kerfisins,“ segir Drífa. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×