Komst ekki heim frá Íran fyrr en mánuði eftir árásirnar Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 26. júlí 2025 10:32 Gína Júlía Waltersdóttir var stödd ásamt dóttur sinni á eyjunni Kish í suðurhluta Íran þegar Íshaelsher hóf að gera árásir á landið í júní. Íslensk kona sem var stödd í Íran þegar Ísraelsher hóf árásir á landið í júní komst ekki úr landinu og til Dúbaí, þar sem hún er búsett, fyrr en mánuði síðar. Hún lýsir miklum ótta og ringulreið í tólf daga stríðinu sem fylgdi.
Gína Júlía Waltersdóttir hefur búið í Dúbaí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í tólf ár og starfar þar sem lögfræðingur og stjórnmálaskýrandi. Þá vinnur hún hjá hjálparsamtökum í Svíþjóð sem aðstoða konur sem hafa orðið fyrir heimilisofbeldi. Ísraelsher hóf að gera árásir á mörg skotmörk í Íran þann 13. júní eftir langan og flókinn aðdraganda. Íran svaraði árásunum með hefndarárásum og mættu þá enn frekari árásum frá Ísraelsher. Samkvæmt upplýsingum frá írönskum stjórnvöldum voru hátt í þúsund Íranir drepnir í árásum Ísraela, en fréttir af átökunum innan frá Íran voru af skornum skammti meðan á átökunum stóð. Gína var stödd í Íran þegar árásirnar hófust og yfirgaf ekki landið fyrr en mánuði síðar. Sonurinn á Íslandi smeykur „Ég var í Suður-Íran að heimsækja vini mína þegar þetta gerðist. Ég heimsæki Íran reglulega, sérstaklega suðurhlutann,“ segir Gína í samtali við fréttastofu. Hún var stödd á eyjunni Kish þegar árásirnar hófust. Dóttir Gínu var með henni í för en sonur hennar var heima á Íslandi. „Ég vaknaði um þrjúleytið um nótt við stanslaust píp í símanum mínum. Þetta var sonur minn. Hann var gjörsamlega í öngum sínum og spurði hvort við værum enn á lífi,“ segir Gína. Þá hafði sonurinn lesið á vefmiðlum að Ísraelsher hefði gert árásir á Íran. „Það var enginn fyrirvari, vegna þess að allir héldu að Íranir væru í samningaviðræðum við Bandaríkin. Það var algjör ringulreið sem fór í gang eftir að Ísraelar byrjuðu að gera árásirnar,“ segir Gína en í aðdraganda þeirra höfðu Íranir og Bandaríkin staðið í viðræðum um kjarnorkuáætlun Íran en viðræðurnar virtust hafa siglt í strand. Loftárásunum hafi fylgt netárásir, meðal annars á bankana í Íran, með þeim afleiðingum að greiðslukerfið hrundi og hvergi var hægt að borga með korti. Þá hafi orðið netlaust og fólk í landinu þurft að reiða sig á sjónvarpsútsendingar ríkismiðilsins, þar til höfuðstöðvar hans voru sprengdar í loft upp. „Okkur leið hræðilega. Við vissum ekki við hverju við ættum að búast, þetta var mjög ógnvekjandi. Og ég held að ástæðan fyrir því að við komumst í gegn um þetta hafi verið sú að við fengum stuðning frá svo mörgum,“ segir Gína, og lýsir mikilli gestrisni gestgjafanna sem sáu fyrir þeim sem áttu ekki mat. „Enginn vissi hversu lengi þetta ástand væri að fara að standa yfir. Við vissum ekki hvort við værum að fara að upplifa það sem gerðist í Írak, Sýrlandi, Afganistan eða hvað. Við vorum ekki að fá neinar upplýsingar um hvað væri í gangi,“ segir Gína. Íranir hafi óttast að átökin yrðu harðari og að þau kæmu til með að standa yfir í lengri tíma. Fengu ekki pláss Gína var í Íran í rúman mánuð eftir árásirnar þar sem engin flug voru frá Íran og aðrar leiðir út úr landinu voru of hættulegar eða of mikil örtröð hefði skapast við landamærin. Upprunalega hafi þær mæðgur átt bókað flug heim mánudaginn 16. júní en því verið aflýst. Hún og dóttir hennar hafi því haldið kyrru fyrir á sama stað og verið í samskiptum við utanríkisþjónustuna. Í nágrenni við Kish, þar sem þær dvöldu, er bæði olíuborpallur og kjarnorkustöð. Þær óttuðust að innviðirnir yrðu að skotmörkum Ísraelshers. Gína er tíður gestur á eyjunni Kish. Þar á hún vini sem hún heimsækir iðulega.Aðsend „Það erfiðasta við þetta allt saman var að hafa dóttur mína með mér. Hún er ung kona en eins og aðrir foreldrar reyndi ég að vera hugrökk og gera ekki of mikið úr aðstæðunum, en ég var mjög hrædd. Ég var að sjálfsögðu hvergi nærri því sem mæðurnar á Gasa þurfa að ganga í gegn um en þessi upplifun gerir mér samt kleift að tengja við þær. Ég get ekki ímyndað mér þá mannvonsku sem mæðurnar á Gasa þurfa að ganga í gegn um daglega,“ segir Gína. Mæðgurnar skráðu sig á biðlista til þess að fá pláss á neyðarbátum sem flutti íbúa Sameinuðu arabísku furstadæmanna frá Íran til Dúbaí. Þegar röðin var loksins komin að þeim var tólf daga stríðinu lokið og bátarnir því hættir að ferja fólk á milli. Ferja sem siglir alla jafna milli Írans og Dúbaí hafi ekki verið í umferð vegna hættu á frekari árásum. Mæðgurnar hafi því beðið eftir fyrstu flugferðinni til Dúbaí, sem var ekki farin fyrr en mánuði síðar. Flýr ókyrrðina á Mið-Austurlöndum Gína segir að í mánuðinum eftir árásirnar hafi heimferðin sjálf ekki skipt lykilmáli, heldur matarbirgðirnar. Netárásir á greiðslukerfið gerðu það að verkum að ekki var hægt að greiða fyrir mat. Samfélagið allt, moskurnar og verslanirnar hafi lagt sitt af mörkum. „Fólk í Mið-Austurlöndum er miklu gestrisnara en víða annars staðar. Þeir sem áttu eitthvað sáu fyrir þeim sem áttu ekki neitt. Það lögðust allir saman á eitt og það var séð til þess að þeir sem áttu ekki peninga eða mat fengju að borða.“ „Það kemur mér í raun á óvart að þetta hafi bara tekið mánuð. En þetta var áhugaverð reynsla,“ segir Gína. Miðað við ástandið sem skapaðist í stríðinu hafi hún reiknað með að dvelja á Kish um skeið. Gína hefur nú dvalið heima hjá sér í Dúbaí síðan hún yfirgaf Íran en undirbýr nú flutninga þaðan aftur til Evrópu. Hún segir ókyrrðina hreinlega of mikla á svæðinu og að margir fyrrverandi Vesturlandabúar í Dúbaí séu í sömu hugleiðingum og hún. „Mér þykir auðvitað leitt að þurfa að flytja héðan af þessum ástæðum. Fólkið hér á betra skilið,“ segir Gína, sem segist hafa liðið vel í Dúbaí. Kallar eftir aðgerðum Gína segist eiga erfitt með að skilja fréttaflutning um að um stríð hafi verið að ræða, og orð vestrænna ráðamanna um að Ísrael hafi verið að vinna skítaverkin fyrir hinar þjóðirnar, líkt og Friedrich Merz kanslari Þýskalands sagði í síðasta mánuði. Miðað við það sem hún sá hafi árásunum verið að meginstefi til beint að óbreyttum borgurum, líkt og á Gasa. „Þetta var bara hryðjuverkaárás. Árásunum var beint að fólki, venjulegu fólki. Þó stríðinu sé lokið er þetta enn í gangi þó það sé í minna mæli. Íran er alveg lamað eftir þetta,“ segir Gína. Hún gerir ákall eftir því að íslensk stjórnvöld grípi til aðgerða gegn Ísraelsríki. Í skoðunargrein á Vísi segir hún aðgerðir íslenska ríkisins í málefnum Palestínu ekki í samræmi við yfirlýsingar þess. „Mig langar að sjá Ísland endurtaka þá afstöðu sem var tekin árið 2011 og sýna þá mannúð og viðleitni að beita sér fyrir að alþjóðalögum sé fylgt,“ segir Gína og vísar þar með í viðurkenningu Íslands á sjálfstæði Palestínu. Hún hvetur ráðamenn til að taka fastar undir með Írlandi, Spáni og nú Frakklandi á alþjóðavettvangi sem hafa nú þrýst á Ísrael að láta af stríðsrekstri sínum á Gasa. Viðskiptaþvinganir séu að auki mikilvægt aðgerð sem íslenska ríkið þurfi að ráðast í. „Ég sé ekki eina gilda ástæðu fyrir því að Ísland ætti að eiga diplómatískt, fjárhagslegt eða nokkurs konar samband við Ísraelsríki. Það er engin ástæða til þess.“
Íran Ísrael Íslendingar erlendis Sameinuðu arabísku furstadæmin Átök í Ísrael og Palestínu Tengdar fréttir Óttast um líf fjölskyldu sinnar í Íran: „Ég sef ekki á nóttunni“ Íranskur flóttamaður á Íslandi lýsir áhyggjum af fjölskyldu sinni sem er föst í Teheran, þar sem stríð hefur nú geisað í fimm daga. Hann segir að eiginkona sín og barn séu búin að fá dvalarleyfi hér á landi en fyrirtækið sem skaffar vegabréfsáritanir í Íran sé lokað vegna stríðsins. 18. júní 2025 17:11 Mest lesið Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Erlent Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Innlent Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Erlent Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent Kourani farinn úr landi Innlent Fleiri fréttir Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Sjá meira
Óttast um líf fjölskyldu sinnar í Íran: „Ég sef ekki á nóttunni“ Íranskur flóttamaður á Íslandi lýsir áhyggjum af fjölskyldu sinni sem er föst í Teheran, þar sem stríð hefur nú geisað í fimm daga. Hann segir að eiginkona sín og barn séu búin að fá dvalarleyfi hér á landi en fyrirtækið sem skaffar vegabréfsáritanir í Íran sé lokað vegna stríðsins. 18. júní 2025 17:11