Lægðardrag yfir vestanverðu landinu en hiti gæti náð 18 stigum Magnús Jochum Pálsson skrifar 26. júlí 2025 08:23 Þrátt fyrir lægðardrag, hægan vind og skúrir gæti hitinn náð átján stigum í dag. Vísir/Vilhelm Lægðardrag liggur yfir vestanvert landið og rignir dálítið úr því í dag. Vindar eru hægir framan af degi en síðan gengur í norðvestanstrekking með vesturströndinni. Skýjað með köflum austantil, skúrir eftir hádegi og jafnvel dembur seinnipartinn. Hiti allt að átján stig suðaustantil þegar best lætur.
Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Áttin verður vestlæg, þrír til átta metrar á sekúndu, framan af en síðdegis veður hún norðvestlæg átta til þrettán metrar á sekúndu. Hiti er á bilinu átta til átján stig, hlýjast á Suðausturlandi. „Á morgun er komin hægfara lægð fyrir austan land og norðvestlæg átt því ríkjandi, sums staðar kaldi eða strekkingur á annesjum. Rignir norðanlands og fremur svalt í veðri, en bjart með öflum syðra og hlýtt í veðri. Lægir víða og rofar til annað kvöld, þegar dálítill hæðarhryggur kemur inn yfir landið,“ segir í hugleiðingum veðurfræðingsins. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á sunnudag: Norðvestlæg átt, 5-13 m/s, en dregur úr vindi seinnipartinn. Dálítil rigning eða súld á Norður- og Austurlandi, annars bjart með köflum, en stöku síðdegisskúrir suðaustantil. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast syðst. Á mánudag: Gengur í suðaustan 8-15 m/s með rigningu, en hægari og lengst af þurrt norðanaustanlands. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast á Norðausturlandi. Á þriðjudag: Suðlæg átt, 3-8 m/s og rigning eða skúrir, en úrkomulítið norðaustanlands. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast norðaustantil. Á miðvikudag: Útlit fyrir vestlæga átt með skúrum. Bjart norðaustan lands að mestu. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast norðaustantil. Á fimmtudag: Útlit fyrir norðlæg átt með skúrum víða um land, en bjartviðri vestanlands. Kólnandi fyrir norðan. Á föstudag: Líkur á hægum vindi, víða björtu og hlýju veðri.
Veður Mest lesið „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ Innlent Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Erlent „Mjög áhugaverð umræða“ Innlent Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Innlent Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Erlent Jói Fel málar með puttunum Innlent Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Innlent Maður hlotið stórfellt líkamstjón eftir árás ungmenna Innlent Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Innlent Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Innlent Fleiri fréttir Má búast við skúrum eða éljum Víðast úrkomulítið en skúrir og slydduél austantil Mildri austanátt beint til landsins Áfram hvasst með suðurströndinni Slær áfram í storm á suðurströndinni Djúp lægð veldur stormi syðst á landinu Þurrt og bjart víða um landið Hvasst syðst á landinu Kólnandi veður og víða bjart Ákveðin austanátt á landinu öllu og víða snarpar hviður Víða rigning með köflum og bætir í vind í kvöld Róleg austanátt en hvessir á morgun Víða rigning og kólnar í veðri Minnkandi norðlæg átt en bætir í vind á morgun Þurrt og bjart suðvestantil en snjór og él víða Líkur á smá slyddu og snjókomu syðst Stíf norðvestlæg átt ásamt ofankomu Gæti slegið í storm og hringvegurinn lokaður Óvissustig á vegi milli Kirkjubæjarklausturs og Jökulsárlóns Gular veðurviðvaranir framundan Útlit fyrir hríðarveður á austasta hluta landsins í kvöld Frost og hægur vindur Norðaustlæg átt og allvíða él Veginum lokað við Skaftafell og fólk leitar í fjöldahjálparstöð Vara við eldingum á Suðausturlandi Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Áfram kalt á landinu Óvenjulega hlýr desember Áfram kalt og lægðir sækja að landinu Hægir vindar og snjókoma norðan- og austantil Sjá meira