Segir nýjan viðskiptasamning þann „stærsta í sögunni“ Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 27. júlí 2025 22:03 Von der Leyen og Trump tókust í hendur á Turnberry-golfvellinum í Skotlandi, sem er í eigu Trump. AP Donald Trump Bandaríkjaforseti og Ursula von der Leyen forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins undirrituðu í dag viðskiptasamning sem felur í sér fimmtán prósenta heildartoll á innflutning Evrópusambandsríkja til Bandaríkjanna.
Von der Leyen og Trump hittust að því tilefni á golfvelli Trump í Skotlandi í dag. Samningurinn gjörminnkar hættu á viðskiptastríði sem hefur verið yfirvofandi að undanförnu. „Viðræðurnar voru mjög áhugaverðar. Ég hugsa að báðar hliðar græði á þessu,“ hefur AP eftir Trump. Í frétt BBC lýsir Trump samningnum sem þeim „stærsta í sögunni“. Von der Leyen sagði að samningurinn kæmi til með að tryggja stöðugleika og fyrirsjáanleika í viðskiptum beggja vegna Atlantshafsins. Nokkur atriði í samningnum sem snúa að viðskiptum Bandaríkjanna og Evrópusambandsins eru enn á huldu. Trump sagði eftir fundinn að Evrópusambandið hefði lofað að verja 750 milljörðum Bandaríkjadala í bandaríska orku og 600 milljörðum meira en hingað til í fjárfestingar á bandarískum markaði. Á blaðamannafundi eftir fundinn sagði von der Leyen þó að milljörðunum 750 verði varið í orku á næstu þremur árum. Fjárfestingarnar verði til þess að Evrópusambandið þurfi ekki að reiða sig jafn mikið á Rússland í olíukaupum. Þjóðarleiðtogar Evrópusambandsins segjast fegnir að samningur sé í höfn, þar á meðal Friedrich Merz Þýskalandskanslari, Giorgia Meloni forsætisráðherra Ítalíu og Micheal Martin forsætisráðherra Írlands.
Skattar og tollar Bandaríkin Evrópusambandið Skotland Donald Trump Bretland Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Fleiri fréttir „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Sjá meira