Vefsíða Arsenal hrundi í miðju Gyokeres æði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. júlí 2025 09:31 Það vilja margir Arsenal stuðningsmenn eignast treyju Viktor Gyokeres eftir að hann samdi við enska félagið. Getty/Stuart MacFarlane Arsenal er loksins búið að kaupa sér framherja og það er óhætt að segja að væntingarnar hjá stuðningsmönnum félagsins séu miklar.
Arsenal hefur lent í öðru sæti í ensku úrvalsdeildinni undanfarin þrjú tímabil án þess að vera með alvöru níu í liðinu. Stuðningsmenn og sérfræðingar hafa hneykslast mikið á knattspyrnustjóranum Mikel Arteta að hafa ekki keypt framherja fyrir löngu. Inheriting the shirt of an Arsenal icon 🌟Viktor Gyokeres will wear the number 14 shirt, once worn by Gunners legend Thierry Henry 1️⃣4️⃣ pic.twitter.com/x3Ow3d83JE— Premier League (@premierleague) July 26, 2025 Nú er liðið loksins komið með alvöru markaskorara og það er hvorki meira né minna en markahæsti leikmaður Evrópu á síðasta ári. Arsenal keypti sænska framherjann Viktor Gyokeres frá Sporting í Portúgal. Það tók smá tíma að ná samkomulagi en það hafðist. Eftir að Arsenal staðfesti kaupin og fór að selja treyju Gyokeres á sölusíðu sinni þá varð allt vitlaust. Það er fyrir löngu búið að setja nýtt sölumet og nú síðast hrundi heimasíða Arsenal vegna álagsins. Gyokeres gat ekki fengið níuna því Gabriel Jesus er með hana. Hann valdi því treyju númer fjórtán en í henni lék markahæsti leikmaður Arsenal frá upphafi, Thierry Henry. Ekki minnkar pressan á Gyokeres við það. Stuðningsmennirnir eru líka spenntir fyrir treyjunni því hún rýkur hreinlega út í Arsenal versluninni. View this post on Instagram A post shared by TNT Sports Football (@tntsportsfootball)
Enski boltinn Mest lesið Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Íslenski boltinn Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Enski boltinn Arsenal lét mæla grasið fyrir leik Fótbolti Tindastóll - Stjarnan 103-88 | Stólarnir lifa góðu lífi Körfubolti Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Körfubolti Stjarnan - Valur 2 - 0 | Sterkur sigur í fyrsta heimaleik Íslenski boltinn Tefldu á tæpasta vað en leika áfram í Olís-deildinni Handbolti Breiðablik - Fram 2-0 | Sól og Líf í Kópavogi Íslenski boltinn Tryggvi varði Evróputitil með Bilbao Körfubolti Arsenal fékk ekki annað víti og allt jafnt fyrir seinni slaginn Fótbolti Fleiri fréttir Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Haaland skaut Manchester City á toppinn Sjá meira