Gamall Stjörnumaður kemur aftur til Íslands og semur við Álftanes Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. júlí 2025 13:03 Shawn Hopkins í leik með Stjörnunni tímabilið 2021 til 2022. Vísir/Vilhelm Finnski framherjinn Shawn Hopkins hefur samið við Álftanes um að spila með liðinu í Bónus deild karla í körfubolta næsta vetur.
Hopkins varð finnskur meistari með liði Seagulls frá Helsinki nú í vor. Þetta verður ekki í fyrsta sinn sem Hopkins leikur á Íslandi, en tímabilið 2021-2022 var hann hjá Stjörnunni og varð þá bikarmeistari með liðinu. Þá skoraði hann 14,7 stig og tók 6,1 frákast að meðaltali í leik með Garðabæjarliðinu. Þegar Hopkins var hér síðast þá var Álftanes í fyrstu deild og hafði aldrei spilað í efstu deild. Margt er breytt síðan þá og Álftnesingar hafa verið með í úrslitakeppninni síðustu tvö tímabil. Hann fær því tækifæri til að mæta sínum gömlu félögum í Garðabæjarslag á komandi tímabili. Hopkins á að baki fjögur góð tímabil í efstu deild Finnlands, en hann hefur einnig leikið í Rúmeníu. Áður en atvinnumannaferillinn hófst lék Hopkins í bandaríska háskólaboltanum. Þar hóf hann leik fyrir lið Troy University en fyrir lokaárið sitt söðlaði Hopkins um og samdi við University of North Georgia, sem leikur í 2. deild NCAA háskólakeppninnar. Þar skilaði Hopkins rúmum 16 stigum, tæpum sex fráköstum og rúmum tveimur stoðsendingum í leik. Hopkins á að baki tuttugu landsleiki fyrir Finnland og lék á sínum tíma yfir hundrað leiki með finnsku yngri landsliðunum. Álftnes hefur verið að styrkja sig í sumar en áður hafði félagið samið við Hilmir Arnarson, sem kemur frá Haukum, Sigurður Pétursson sem kemur frá Keflavík og Ragnar Nathanaelsson sem kemur frá Hamri.
Bónus-deild karla UMF Álftanes Stjarnan Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Uppsagnir hjá Arsenal Enski boltinn KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Fótbolti Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Fótbolti Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Fleiri fréttir Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Kokkur í vandræðum með hráefni eldi aldrei gæðamáltíð Allt annað að sjá Helenu í dag: „Gríðarlegur kraftur í henni“ Uppgjörið: Ármann - Valur 78-89 | Valskonur aftur á sigurbraut Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Dísætur sigur Stjörnunnar en bilið breitt í Keflavík og á Króknum Uppgjörið: KR-Njarðvík 97-115 | Fyrsta tap KR-inga gegn Íslandsmeisturunum Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Tryggvi Snær og félagar aftur á sigurbraut Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Líktu Álftanesi við Bayern München Hafði betur í spænska Íslendingaslagnum Óvænt truflun í Njarðvík „Náðum að auka tempóið í seinni hálfleik“ „Viðhorf leikmanna angrar mig“ Áfall fyrir Tindastól: „Ég er ekki læknir en þetta leit illa út“ Uppgjörið Grindavík - KR 80-91 | KR jók hraðann í seinni hálfleik og innbyrti sigur „Erfitt að koma í þetta hús og sækja sigur“ Reikna með Kane en vita ekki hvenær „Menn eru að reyna að vera með ábyrgan rekstur“ 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ „Þetta eru alvöru hermenn“ „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ „Annars er mér bara fokking drullusama“ Uppgjörið: Sindri - ÍR 91-97| ÍR hélt út óvæntan spennutrylli í restina Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Sjá meira