Lehmann færir sig um set á Ítalíu Siggeir Ævarsson skrifar 12. ágúst 2025 23:17 Lehmann leikur á nýjum slóðum á Ítalíu á komandi tímabili Mynd Como FC Skærasta stjarna kvennaknattspyrnunnar, utan vallar í það minnsta, Alisha Lehmann, mun leika með Como FC í ítölsku deildinni á komandi tímabili en hún kemur til liðsins frá meisturum Juventus.
Lehmann hefur vægast sagt vakið mikla athygli utan vallar en hún er með tæplega 17 milljón fylgjendur á Instagram og 12 milljón á TikTok. Innan vallar hefur einstaklingsárangurinn ekki verið alveg á pari við árangurinn á samfélagsmiðlum en á liðnu tímabili skoraði hún tvö mörk í 16 deildarleikjum með Juventus. Hún lyfti engu að síður þremur bikurum með liðinu en liðið vann bæði deildina og báðar bikarkeppnirnar á Ítalíu. Í stað þess að taka slaginn með meisturunum á ný og spila í Evrópukeppninni færir hún sig yfir til Como en liðið endaði í sjöunda sæti af tíu liðum á síðasta tímabili. Lehmann segir skiptin eiga sér eðlilega skýringu, en Como er sjálfstætt kvennalið og ekki með tengingu við neitt karlalið þrátt fyrir að það leiki vissulega lið með sama heiti í Seríu A karlamegin. Lehmann, sem er 26 ára, gerði þriggja ára samning við liðið. „Þetta er sjálfstætt félag með algjöran fókus á kvennaknattspyrnu og það skiptir mig virkilega miklu máli. Ég sá strax að þetta er ekki eins og hvert annað lið. Þetta er verkefni með ákveðið markmið og framtíðarsýn.“
Ítalski boltinn Fótbolti Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Sjáðu rauða spjaldið sem Gísli fiskaði og fékk svo sjálfur Handbolti „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Fleiri fréttir Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Daníel Leó til dönsku meistaranna Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Sjá meira