Gefa allan hagnað af Ísraelsleiknum til góðgerðamála Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. ágúst 2025 21:33 Lise Klaveness, forseti norska knattspyrnusambandsins, reynir að milda mótmælendur fyrir leik norska karlalandsliðsins á móti Ísrael. Getty/ Trond Tandberg Norska knattspyrnusambandið undirbýr sig fyrir mikil mótmæli og læti í tengslum við heimaleik liðsins á móti Ísrael í undankeppni HM í október.
Stríð Ísraels við Hamas samtökin á Gaza ströndinni hefur verið gagnrýnt harðlega í Noregi sem annars staðar í heiminum enda virðast ísraelsk stjórnvöld vera að reyna að svelta fólkið á Gaza ströndinni til dauða. Skipuleggjendur mótmæla út um allan heim krefjast þess að samið verði um stríðslok á Gaza og um leið lausn gísla úr haldi Hamas-samtakanna. Það má því líka búast við mótmælum þegar Ísraelsmenn mæta til Osló. Lise Klavenesss, forseti norska knattspyrnusambandsins, reyndi að minnka spennuna og mótmælaaðferðir í tengslum við Ísraelsleikinn með því tilkynna það að allur hagnaður af miðasölu á leikinn verði gefinn til góðgerðamála. Norska ríkisútvarpið segir frá. „Hvorki við eða önnur sambönd geta litið fram hjá þjáningum fólksins og þeim einhliða árásum sem fólkið á Gaza ströndinni hefur þurft að þola í langan tíma. Ísrael er hluti af FIFA og UEFA og tekur þátt í keppnum á vegum þeirra. Við verðum að takast á við það. Við viljum samt gefa hagnað okkar til góðgerðamálefna sem bjarga lífum á Gaza ströndinni á hverjum degi. Við viljum styðja við þessa mikilvægu neyðaraðstoð á staðnum,“ sagði Lise Klaveness. Norska knattspyrnusambandið mun einnig skipuleggja aukaöryggisráðstafanir í tengslum við leikinn en það verða tvö til þrjú þúsund færri miðar seldir á leikinn á Ullevaal leikvanginum. Fyrri leikur þjóðanna fór fram á hlutlausum velli í Ungverjalandi vegna stríðsástandsins og endaði með 4-2 sigri Norðmanna. Seinni leikurinn fer fram 11. október. Norðmenn hafa byrjað undankeppnina vel og eru líklegt til að tryggja sig inn á sitt fyrsta stórmót síðan sumarið 2000.
Norski boltinn HM 2026 í fótbolta Mest lesið Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Fótbolti Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Fótbolti Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Fótbolti Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Fótbolti Hátt hlutfall heilaskaða hjá látnum leikmönnum Sport „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Fótbolti Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Enski boltinn Fleiri fréttir Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Brann áfram á sigurbraut í Evrópu Baleba orðinn leikmaður Manchester United Infantino fær stuðning: „Hann hefur ekki gert neitt rangt“ „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Birta þrumuræðu Freys fyrir leik gegn Noregsmeisturunum Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga „Ekkert undir mér komið að tjá mig um það“ Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára Baulað á Alvarez hjá Atletico Madrid Cody Gakpo orðaður við Manchester City „Maður var aldrei alveg rólegur“ Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Ísak Andri nálgast sænsku úrvalsdeildina Sjá meira