Fannst skilaboðin frá dómaranefnd galin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. september 2025 11:59 Jón Guðmundsson hefur bæði fengist við þjálfun og dómgæslu. vísir/daníel Jóni Guðmundssyni fannst svörin sem hann fékk frá dómaranefnd KKÍ þegar hann ætlaði að snúa aftur í dómgæslu ekki merkileg.
Í viðtali við Vísi lýsti Davíð Tómas Tómasson, alþjóðadómari í körfubolta, að hann væri hættur að dæma vegna ósættis við dómaranefnd KKÍ. Davíð sagðist ekki vera eini dómarinn sem hafi verið settur út af sakramentinu hjá dómaranefnd KKÍ og nefndi í því samhengi meðal annars Jón sem var um langt árabil einn fremsti dómari landsins. Hann tók sér hlé frá dómgæslu um tíma en þegar hann ætlaði að snúa aftur kom hann að lokuðum dyrum. „Ég fékk ekki nein bein svör. Ég kom inn með mikla reynslu og gott orð en mér var sagt að það væru aðrir á þeim stað sem ég var að reyna að komast á. Það var allt og sumt,“ sagði Jón í samtali við Vísi. Hvað samskiptavanda við dómaranefnd KKÍ varðar segir Jón að hann hafi haft sínar skoðanir á dómaramálunum hér á landi en það hafi þó ekki verið gefin sem skýring fyrir því að hann væri ekki velkominn til baka í dómgæsluna. „Ég hafði mínar skoðanir á hlutunum og þeir sínar. Þess vegna er kannski talað um samskiptavanda. Þegar ég kom til baka fékk ekkert að heyra að þetta væri samskiptavandi heilt yfir, heldur að nú væri ég að koma til baka eftir hlé og nú væru aðrir á þeim stað sem ég var að reyna að komast á. Það voru þau skilaboð sem ég fékk frá dómaranefnd,“ sagði Jón. Honum fannst ekki mikið til þeirra svara koma. „Þau eru galin, ef ég á að vera alveg hreinskilinn. Ég vissi alveg hvað ég gat og kunni í þessum fræðum en að geta ekki nýtt mína krafta fannst mér frekar lélegt.“ Varðandi þá dómara sem hafa helst úr lestinni á undanförnum árum kallar Jón eftir svörum frá dómaranefnd. „Mér finnst að þessi svör verði að koma frá þeim sem stjórna. Þótt ég geti hafa verið erfiður í samskiptum var ég ekkert með stæla og læti allan daginn alla daga. En maður hafði skoðanir á hlutunum og þegar maður varpaði þeim fram fór það misvel í fólk. Ég skil það alveg að menn hafi sitt hvora skoðunina á þessu. En á sínum tíma fannst mér þetta frekar skítt,“ sagði Jón að lokum.
KKÍ Körfubolti Bónus-deild karla Bónus-deild kvenna Mest lesið Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Fótbolti HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Fleiri fréttir Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Sjá meira