Funheitur Messi tryggði Inter Miami í úrslitakeppnina Sindri Sverrisson skrifar 25. september 2025 09:02 Lionel Messi heldur áfram að raða inn mörkum fyrir Inter Miami. Getty/Dustin Satloff Lionel Messi var á skotskónum með Inter Miami í nótt og skoraði tvö mörk í 4-0 sigri gegn New York City í bandarísku MLS-deildinni.
Argentínski landsliðsfyrirliðinn hefur nú skorað 24 mörk í 23 leikjum á tímabilinu og eftir sigurinn er öruggt að Inter Miami verður í úrslitakeppninni, þó að liðið eigi enn fimm leiki eftir. Mörkin úr leiknum í nótt má sjá hér að neðan. Það var Baltasar Rodriguez sem kom Miami yfir rétt fyrir hálfleik, eftir frábæra stungusendingu Messi, og hinn 38 ára gamli Messi jók forskotið á 74. Mínútu. Fyrrverandi liðsfélagi Messi hjá Barcelona, Luis Suárez, skoraði svo úr víti áður en Messi innsiglaði sigurinn með sínu öðru marki. „Við erum núna öruggir um að komast í úrslitakeppnina. Það er mjög mikilvægt fyrir okkur. Núna höldum við bara áfram,“ sagði Javier Mascherano, þjálfari Inter Miami. Messi hefur nú skorað fimm mörk á níu dögum, og að minnsta kosti tvö mörk í átta af síðustu tólf leikjum. Miami er í þriðja sæti austurdeildarinnar, fimm stigum á eftir Philadelphia Union en með tvo leiki til góða. Fjórtán lið, sjö úr austurdeild og sjö úr vesturdeild, komast í 16-liða úrslit úrslitakeppninnar en hún hefst 22. október á umspili liðanna sem enda í 8.-9. sæti í deildunum.
Bandaríski fótboltinn Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira