Sögð vafin í ísraelska fánann og veifað um eins og verðlaunagrip Jón Þór Stefánsson skrifar 5. október 2025 12:33 Greta Thunberg er í haldi Ísraelsmanna. EPA Greta Thunberg er sögð sæta illri meðferð í varðhaldi í Ísrael eftir að hún og aðrir aktívistar í hinum svokallaða frelsisflota, á leið með hjálpargögn til Gasastrandarinnar, voru handteknir af ísraelskum stjórnvöldum. Hún er til að mynda sögð hafa verið látin kyssa ísraelska fánann.
Guardian greinir frá þessu, en miðillinn byggir umfjöllun sína að miklu leyti á samskiptum einhverra mótmælendanna við sænsk yfirvöld sem miðillinn hefur séð. Fangaklefinn sem Thunberg dúsar nú í er sagður morandi í veggjalús. Hún sé útötuð í útbrotum, sem hún telur eftir lúsina. Hún neyðist til að sitja löngum stundum á hörðu og óþægilegu undirlagi. Þá fái hún lítið að borða og drekka, telji sig vera að þorna upp. Thunberg er sögð hafa verið mynduð meðan hún var látin halda á fánum, hvers kyns fánum er óljóst. Tyrkneski fjölmiðillinn Anadolu hefur ógeðfeldar lýsingar af framferði í garð Thunberg eftir einum aktívista sem hefur verið látinn laus. „Þeir drógu litlu Grétu á hárinu fyrir framan okkur, lömdu hana, og neyddu hana til að kyssa ísraelska fánann. Þeir gerðu allt mögulegt við hana til að vara okkur hin við,“ sagði hann. Lorenzo D’Agostino, ítalskur blaðamaður og meðlimur frelsisflotans, sagði að Thunberg hafi verið vafið í ísraelska fánann og henni veifað um líkt og um verðlaunagrip væri að ræða.
Átök í Ísrael og Palestínu Ísrael Svíþjóð Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Erlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Fleiri fréttir Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Sjá meira