Fer að rigna og bætir í vind Atli Ísleifsson skrifar 9. október 2025 07:10 Hiti verður á bilinu fjögur til tíu stig. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir minnkandi suðvestanátt, fimm til þrettán metrum á sekúndu eftir hádegi og fer þá að rigna, fyrst suðvestanlands. Það mun svo bæta í vind í kvöld og nótt.
Á vef Veðurstofunnar segir að hiti verði á bilinu fjögur til tíu stig. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að það hafi verið hvasst á landinu í gær en í nótt hafi vindur smám saman verið að ganga niður. „Það er enn nokkuð hvasst í fjallahæð og sá vindur getur verið að stinga sér niður á stöku stað við fjöll á austurhelmingi landsins fram undir hádegi. Næsta lægð er þegar þetta er skrifað komin inn á Grænlandshaf og úrkomusvæði hennar nálgast okkur, kemur fyrst inn á suðvesturhornið um hádegi og færist síðan til norðausturs yfir í aðra landshluta eftir því sem lengra líður á daginn. Vindur með þessari lægð verður mun minni en í gær. Eftir hádegi í dag verður vindur yfirleitt innnan við 10 m/s, en í kvöld gengur í suðvestan strekking víðast hvar. Vindurinn gengur síðan aftur niður á morgun. Hins vegar færist þá nýtt regnsvæði yfir og verður einkum bundið við suðurhelming landsins, þó mun einhver rigning slæðast norður yfir heiðar síðdegis. Um helgina er útlit fyrir suðlægar áttir með vætusömu veðri og þungbúnu, en léttara yfir og þurrt að mestu um landið norðaustanvert. Hlýtt miðað við árstíma. Ef við gægjumst lengra fram í tímann virðast suðlægu áttirnar eiga að ráða ríkjum áfram fyrripart næstu viku með hlýju veðri, en dálítilli vætu sunnan- og vestanlands,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Vestan og suðvestan 5-13 m/s, en heldur hvassara austanlands í fyrstu. Skýjað og stöku skúrir eða slydduél vestantil. Fer að rigna á Suðurlandi síðdegis, hiti 3 til 10 stig. Á laugardag: Suðaustan og sunnan 5-10 með súld eða rigningu, en lengst af þurrt um landið norðaustanvert. Hlýnar heldur. Á sunnudag: Sunnan 5-13 og súld eða rigning, en bjartviðri norðaustantil. Hiti 8 til 14 stig. Á mánudag, þriðjudag og miðvikudag: Suðlæg átt og dálítil væta með köflum, en þurrt og víða bjart á Norður- og Austurlandi. Áfram hlýtt í veðri.
Veður Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Erlent Fleiri fréttir Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Sjá meira