Mörk Íslands og Úkraínu: Tvö undir lokin frá gestunum Sindri Sverrisson skrifar 10. október 2025 19:11 Mikael Egill Ellertsson skoraði fyrsta mark Íslands í kvöld eftir frábæran sprett. vísir/Anton Gestirnir frá Úkraínu skoruðu tvö mörk undir lok leiks Íslands við Úkraínu í undankeppni HM í fótbolta á Laugardalsvelli, og komust þannig í 5-3. Mörk leiksins má sjá á Vísi.
Oleg Ocheretko rak síðasta naglann í kistu Íslendinga með marki á 88. mínútu, rétt eftir að gestirnir höfðu komist í 4-3. Markið frá Ocheretko má sjá hér að neðan og öll mörk leiksins neðar í greininni. Fyrrverandi leikmaður Keflavíkur, Ivan Kaliuzhnyi, náði að koma Úkraínu yfir á ný í leiknum þegar hann skoraði fjórða mark liðsins á 85. mínútu. Markið má sjá hér að neðan. Albert Guðmundsson hafði jafnað metin í 3-3 á 75. mínútu þegar hann mætti á hárréttan stað í teignum, eftir fyrirgjöf Loga Tómassonar og „dempun“ Andra Lucasar Guðjohnsen. Albert hafði áður minnkað muninn í 3-2 þegar enn var hálftími eftir af leiknum, með góðum skalla eftir frábæra fyrirgjöf Hákonar Arnars Haraldssonar eins og sjá má hér að neðan. Ruslan Malinovskiy skoraði þriðja mark Úkraínu með frábæru þrumuskoti og sendi Íslendinga afar vonsvikna inn til búningsklefa í hálfleik. Oleksiy Gutsulyak hafði áður komið Úkraínu í 2-1 þegar hann nýtti sér skelfileg mistök Mikaels Egils Ellertssonar í vítateig Íslands. Það var Mikael Egill sem hafði metin í 1-1 upp á sitt einsdæmi, á 35. mínútu, úr afar þröngu færi eftir frábæran sprett. Markið má sjá hér að neðan. Ísland lenti 1-0 undir þegar Ruslan Malinovskiy skoraði eftir 13 mínútna leik. Everton-bakvörðurinn Vitaliy Mykolenko átti stærstan heiðurinn að markinu en hann skeiðaði framhjá Guðlaugi Victori Pálssyni fram vinstri kantinn og gaf svo út í teiginn þar sem Malinovskiy skoraði úr dauðafæri. Fyrsta mark kvöldsins má sjá hér að neðan en leikurinn er í opinni dagskrá á Sýn Sport. Hægt er að fylgjast með öllu sem gerist í leiknum í beinni textalýsingu Vísis með því að smella á greinina hér að neðan.
HM 2026 í fótbolta Landslið karla í fótbolta Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Sjá meira