Blóðpeningar vestrænna yfirvalda Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar 16. október 2025 22:30 Því hefur verið haldið fram að það fyrsta sem fer forgörðum við stríðsátök sé hlutlaus fréttaflutningur. Því skal tekið fram að eftirfarandi samantekt byggir á m.a. endurteknum margþættum samhljóða fréttaflutningi ólíkra aðila og myndefni sem ekki ber nein merki um fölsun. ,,Ísraelar eru guðs útvalda þjóð og alþjóðalög gilda ekki um þá." Þetta er fullyrðing zíonista um eigin yfirburði, er keimlíkur tóni þýskra nasista sem töldu sig herraþjóð og að land þeirra væri ,,über alles." Hér skal strax minnt á að uppruni og þjóðerni er aldrei verið réttlæting á mannréttindabrotum, heldur flokkaðist sem neonýlendustefna, heimsvaldastefna, kynþáttahyggja og oft glæpir gegn mannkyni. Semítar, sem hafa verið kallaðir svo frá 18. öld, ná yfir ólíkar þjóðir og þjóðarbrot sem hafa búið fyrir botni Miðjarðarhafs. Palestínumenn eru semítar sem og þeir sem hafa búið á svæðinu í árhundruðir og sannarlega lengur en frá 1948 en þá hófust hryðjuverk zíonista hófust fyrir alvöru með Nabka. Nabka eru fjöldamorð og þjóðernishreinsanir þar sem þúsundir Palestínumanna voru reknir á brott af heimilum sínum og jörðum. Frá 1948 til stofnunar Hamas, 1987 höfðu a.m.k. 50.000 Palestínumenn verið myrtir. Zíonistar hafa misnotað trúarleg ,,rök“ í áróðri sínum fyrir útrýmingu Palestínumanna Ef þetta snýst um trúarbrögð og ,,guðs útvöldu þjóð“ þá skýtur það sannarlega skökku við, að allt sem zíonistar segja og gera er eins langt frá upphaflegum innsta kjarna flestra trúarbragða og hægt er, þ.e. mannkærleika, heiðarleika og mannvirðingu. Það felst ekkert siðferðislegt í að innræta ísraelskum skólabörnum kerfisbundið að hata og fyrirlíta fólk af öðrum kynþáttum, þannig að þau segja alheiminum stolt frá því að hafa skotið þrjú forskólabörn og óski öllum börnum á Gaza dauða. , ,Hamas er ekki óvinurinn. Hvert einasta barn, hver einasti hvítvoðungur á Gaza er óvinur. Við verðum að sigra Gaza og setjast þar að og ekki skilja eitt einasta barn þar undan“ segir Moshe Feiglin ísraelskur ráðherra. Rannsóknir hafa sýnt að 70% frétta eru hlutdrægar og að fréttaflutningur Vesturlanda hefur verið fólginn í afbökun, þöggun og áróðri. Sem dæmi um þetta er að endurtekið er talað um ,,stríð“ þó að annar meinti ,,stríðsaðilinn“ sé í raun vopnlaus palestínskur almenningur og fórnarlömbin eru fyrst og fremst börn og konur. Ísraelar voru ,,gíslar” en Palestínumenn sem sitja í fangelsum án ákæru, sveltir, niðurlægðir og pyntaðir eru hinsvegar ,,fangar” Þrátt fyrir að sönnunargögn liggi fyrir um landþjóðnað með kúgun og ofbeldi landnema, áætlanir um nýtingu zionista á jarðgasi frá Gaza, um sölu lóða undir hótel og um þjóðarmorð með umfangsmiklum stríðsglæpum, eru fjölmiðlar vestan hafs, ragir að fjalla um staðreyndir með beinum hætti enda hafa stjórnvöld þar ekki farið leynt með stefnu sína um ritskoðun. Stríðsglæpirnir eru m.a. að nota efnavopn og svelti sem útrýmingarvopn en Ísrael og Bandaríkin voru einu ríki heims sem höfnuðu þeirri samþykkt SÞ að matur væri mannréttindi rétt eins og þau höfnuðu vopnahléum að mestu, ekki í orði en á borði. 680.000 Palestínumenn á öllum aldri hafa fallið í valinn samkv. nýlegu mati, þar af 380.00 börn og þá eru ótaldir þeir sem enn liggja undir rústum. Samkvæmt úttekt SÞ hafa amk 242 fréttamenn verið drepnir á Gaza því stríðsglæpina vilja zionistar umfram allt fela, Al Jezeera telja á hinsvegar 278 á síðustu 22 mánuðum. Tæplega 1500 heilbrigðisstarfsmenn hafa verið drepnir á Gaza síðan í október 2023. Hjálparstarfsmenn SÞ hafa í flestum stríðsátökum fengð að starfa óáreittir að mannúðarmálum en á Gaza hafa 383 þeirra verið drepnir og þá eru ótaldir starfsmenn Rauða krossins og Rauða hálfmánans. Ísland sem ekki hefur alveg sjálfstæða utanríkisstefnu, samþykkir þetta. Við ætlum auðvitað að gera ,,eins og nágrannaríkin“ heitir það, en í raun þorum við ekki undan hælnum á hratt fallandi stórveldi í vestri. Þar er afar fjársterkt samfélag zíonískra milljarðamæringa og áhugasamra fjárfesta auk lang afkastamestu vopnaframleiðenda í heimi. Þýskaland hefur reyndar séð zíonistum fyrir 16% vopnanna sem notuð hafa verið í þjóðarmorðinu. En þjóðarmorðið hefði alls ekki verið mögulegt án opnaútflutnings Bandaríkjanna sem er 43% af vopnaútflutningi heimsins en á árunum milli 2020-2024 fluttu þeir út vopn til 107 landa. Þá hefur verið sýnt fram á að, af 355 þingmönnum Bandaríkjaþings hafa aðeins 9 afþakkað fjárhagslegan ,,styrk“ frá ísraelska lobbíinu AIPAC. Jafnvel demokratinn Kamala Harris þáði 9,5 mill. US$ í ,,styrk» frá þeim. Tony Blair sem var ábyrgur fyrir dauða tugþúsunda í Írak hefur tekið að sér að vera vestrænn ,,landstjóri“ á Gaza í samvinnu við Trump og fleiri. Nokkrir af helstu zíonísku fjárfestunum eru milljarðamæringarnir Marc Benioff, Jan Kaum, Michel Dell, Michael Bloomberg, Bill Ackman og Larry Ellison. Enn og aftur ásælast a.m.k. breskir og bandarískir milljarðamæringar erlendar auðlindir, allt í grimmilegum nýlendustíl liðinna alda sem er því miður enn til á 21. öldinni. Þann 29. september settu helstu aðstandendur þjóðarmorðsins, Hamasliðum einhliða afarkosti. Skilaboðin til Palestínumanna voru: ,,Hættið að reyna að berjast fyrir tilveruréttinum, gefið upp vonina um sjálfstæði, réttinn til að tjá ykkur og mótmæla og sættið ykkur við áframhaldandi kúgun og ofbeldi frá her okkar sem verður áfram á því litla svæði sem þið fáið að vera á.“ Þetta mun sem fyrr ekki leiða til friðar. Samkv. planinu á að vera vopnahlé, en zíonistar drepa áfram og á Vesturbakkanum færist landþjófnaðurinn og morðin í aukanna. Í ísraelskum fjölmiðlum er kinnroðalaust sagt frá því að samningurinn sé í raun blekking. Trump og Netajahu grínast í Knessel með gjöreyðingarvopnin sem notuð eru m.a. á börn. Zíonistar hafa hinsvegar sett aukinn kraft í almannatengla og auglýsingaherferðir en óstaðfestar upplýsingar herma að þeir greiði 7000 dali fyrir hverja vinveitta TikTok færslu. Zíonistar hafa sprengt í fimm nágrannalöndum vegna heimsvaldastefnu sinnar og þeir hafa endurtekið verið staðnir að því að ljúga hreint út í sínum áróðursherferðum, þykjast fórnarlömb, eitt af mest markaðsfærðu slagorðunum er að þeir hafi ,,rétt til að verja sig“. – ólíkt öðrum Helstu bandamenn Palestínumanna hefur verið réttsýnn almenningur en vitneskjan um grimmdarverkin er enn að breiðast hratt út. En á hvaða grundvelli styðja menn stórtækan auðlinda- og landþjófnað og til þess ,,nauðsynleg» fjöldamorð á börnum og fjölskyldum þeirra í hundrað þúsunda tali ? Og hvernig mun sagan dæma þau ríki sem það styðja ? Höfundur er upplýsingafræðingur, stjórnsýslufræðingur og Evrópufræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir Skoðun Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir Skoðun Lyf eru fjárfesting í fólki og framtíðinni Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir Skoðun Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir Skoðun Spyrjið okkur hvað við sjáum á TikTok Lena Amirsdóttir Mulamuhic Skoðun Erum við að borða það sem við höldum að við séum að borða? Elísabet Reynisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um tillögurnar? Ragnhildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Spyrjið okkur hvað við sjáum á TikTok Lena Amirsdóttir Mulamuhic skrifar Skoðun Erum við að borða það sem við höldum að við séum að borða? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Lyf eru fjárfesting í fólki og framtíðinni Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir skrifar Skoðun Mikilvæg niðurstaða fyrir launafólk Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Vextir og vöxtur nýsköpunar Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir skrifar Skoðun Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson skrifar Skoðun Náttúruverndargjald: Rétt hugmynd, of þröng útfærsla Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Skólamál verða ekki byggð á hentistefnu Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Rétt mönnun í hjúkrun er fjárfesting í öryggi og gæðum Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Bær í vexti - nýtt aðalskipulag Hafnarfjarðar Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Áhrifavaldar já, Gestgjafinn nei Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér Arna Hrönn Aradóttir,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar venjulegt líf? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Persónulegt níð skilar engum árangri Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Hvað fáum við fyrir reikninginn? Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Berglind Kristinsdóttir,Pálmi Freyr Randversson,Guðjón Skúlason skrifar Skoðun Hvað fær Ísland fyrir fiskeldi? Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar Skoðun Treysta Alþingismenn ekki Alþingi? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar Skoðun Þegar vinstrið slær á framtakið Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Kynami. Þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn Júlíus Valsson skrifar Sjá meira
Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir Skoðun
Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar
Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér Arna Hrönn Aradóttir,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Berglind Kristinsdóttir,Pálmi Freyr Randversson,Guðjón Skúlason skrifar
Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar
Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar
Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir Skoðun