Kevin Durant semur við Rockets til tveggja ára Siggeir Ævarsson skrifar 19. október 2025 23:32 Kevin Durant virðist vera sáttur í Houston og ekki ósennilegt að hann klári ferilinn þar ef allt gengur að óskum Vísir/Getty Kevin Durant og Houston Rockets hafa komist að samkomulagi um að framlengja samning Durant til næstu tveggja ára en Durant skildi umtalsverðir upphæðir eftir á borðinu í samningaviðræðunum.
Durant kom til Rockets í sumar í skiptum frá Phoenix Suns. Þáverandi samningur hans gilti aðeins út komandi tímabil og því ljóst að Rockets urðu að gera nýjan samning við leikmanninn ef ætlunin var að tjalda lengur en til einnar nætur. Sá samningur er nú frágenginn og ljóst að Durant tekur á sig launalækkun. Hann fer úr rúmum 54 milljónum dollara á tímabili í 45 en launaþak og reglur deildarinnar hefðu leyft allt að 60 milljónir í árslaun. BREAKING: Houston Rockets star Kevin Durant has agreed to a two-year, $90 million contract extension with the franchise, his business partner and Boardroom CEO Rich Kleiman tells ESPN. The new deal includes a player option in 2027-28. pic.twitter.com/5GdhzgnSPa— Shams Charania (@ShamsCharania) October 19, 2025 Það má lesa ýmislegt í þessa niðurstöðu en fyrst og fremst gefur þetta Houston Rockets sveigjanleika á leikmannamarkaðnum. Bæði til að endursemja við ungar og upprennandi stjörnur liðsins upp á nýtt og gefa þeim betri samninga þannig að líklegra sé að kjarni liðsins haldi sem og möguleika á að bæta leikmönnum í hópinn en aðalleikstjórnandi liðsins, Fred VanVleet, er meiddur og verður ekki með þetta tímabilið. Durant er 37 ára og verður því langt genginn í fertugt þegar samningurinn klárast, hvað þá ef hann ákveður að taka þriðja árið en sú ákvörðun er honum í sjálfsvald sett. Sumum netverjum finnst þetta ansi há upphæð fyrir mann á hans aldri en Durant er ekki þekktur fyrir að liggja á skoðunum sínum og á það til að svara gagnrýnisröddum á Twitter. Hann tók sig til og svaraði fyrir sig í dag eins og honum einum er lagið. What would u characterize it as? Since we characterizing shit this morning— Kevin Durant (@KDTrey5) October 19, 2025
NBA Körfubolti Tengdar fréttir Kevin Durant fer til Houston Rockets Eftir marga vikna vangaveltur er loksins ljóst hvar stórstjarnan Kevin Durant spilar í NBA deildinni í körfubolta á næsta tímabili. 22. júní 2025 17:11 Mest lesið Tárvotur Messi jafnaði HM markametið með þrennu Fótbolti Haaland í ham er Noregur hóf HM á sigri Fótbolti Freyr ráðinn þjálfari Rosenborg Fótbolti „Ísland ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“ Golf Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Golf „Ef einhver fer að slaka á fær hann að heyra það“ Fótbolti Freyr ekki lengi án starfs? Fótbolti Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Körfubolti Sterkasti læknir landsins Sport „Tvær stórar ákvarðanir sem féllu á móti okkur“ Fótbolti Fleiri fréttir Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ Sjá meira
Kevin Durant fer til Houston Rockets Eftir marga vikna vangaveltur er loksins ljóst hvar stórstjarnan Kevin Durant spilar í NBA deildinni í körfubolta á næsta tímabili. 22. júní 2025 17:11