„Eins og Ísland en bara enn betra“ Sindri Sverrisson skrifar 22. október 2025 08:01 Lars Lagerbäck hreifst eins og margir aðrir af kraftaverki smábæjarliðs Mjällby. Getty/Michael Campanella Lars Lagerbäck, fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta, var á meðal þeirra sem að sendu Mjällby-fólki hamingjuóskir eftir að liðið varð sænskur meistari í fyrsta sinn. Skilaboð sem glöddu menn sérstaklega mikið.
Jacob Lennartsson, framkvæmdastjóri Mjällby, sagði skilaboðin frá Lagerbäck standa upp úr af þeim fjölmörgu sem borist hefðu eftir að liðið tryggði sér meistaratitilinn á mánudagskvöld. Íbúar Mjällby eru innan við 1.500 talsins svo að um algjöran smábæ er að ræða í Svíþjóð. Samt náði liðið að verða það besta í landinu og þetta minnti Lagerbäck greinilega á ævintýrið með íslenska landsliðinu, sem vakti heimsathygli með því að komast í 8-liða úrslit á EM undir stjórn þeirra Heimis Hallgrímssonar. Óvænt skilaboð frá Lagerbäck „Það hafa komið mjög margar hamingjuóskir og þau sem gleðja mest eru auðvitað frá öllum sem hafa verið stuðningsmenn Mjällby allt sitt líf. En Lars Lagerbäck sendi reyndar líka hamingjuóskir. Það var svolítið óvænt og extra gaman,“ sagði Lennartsson við Fotbollskanalen. Hann var þá spurður hvort að Lagerbäck, sem er einnig fyrrverandi landsliðsþjálfari Svía, væri nokkuð stuðningsmaður Mjällby: „Það vitum við nú ekki. En hann kom með líkinguna að þetta væri „eins og Ísland en bara enn betra“, frá því að hann var þar. Það var frábært. Skemmtilegt. Frábær landsliðsþjálfari sem hefur afrekað margt, svo það var sérstaklega ánægjulegt [að fá þessi skilaboð],“ sagði Lennartsson. Annar fyrrverandi landsliðsþjálfari Svía, Janne Andersson, hafði einnig sent skilaboð sem glöddu þjálfara Mjällby en Lennartsson sagði: „Þó að það væri frábært að fá hamingjuóskir frá Janne þá er enn stærra að fá þær frá Lagerbäck. Hann er efstur í SMS-deildinni núna.“
Sænski boltinn Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Körfubolti Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Körfubolti „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ Handbolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Fleiri fréttir FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Sjá meira