„Það getur einhver verið að tæla barnið þitt fyrir framan þig“ Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 22. október 2025 09:26 Sigurður Sigurðsson, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla, mælir ekki með því að foreldrar leyfi börnum sínum að spila tölvuleikinn Roblox. Getty/Vísir Engin börn, sem yfir höfuð hafa aðgang að internetinu, samfélagsmiðlum eða tölvuleikjunum, eru óhult fyrir því að brotamenn reyni að tæla þau. Þetta segir framkvæmdastjóri Heimilis og skóla sem segir mikilvægt að foreldrar setji mörk, fylgist grannt með netnotkun barna sinna og helst leyfi ungum börnum sínum ekki að nota tölvuleiki á borð við Roblox þar sem hver sem er getur nær óhindrað sett sig í samband við börnin.
Sigurður Sigurðsson, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla ræddi svokallaða 764-hópa og aðra sambærilega í Bítinu á Bylgjunni í morgun, en um er að ræða hópa óprúttinna aðila sem reyna að tæla börn og fá þau til að fremja ofbeldi, senda viðkvæmar myndir eða tæla þau til alls konar óæskilegra verka. Tæla börn til alls konar verka Ekki sé langt síðan félagið fékk fyrst spurn af 764-hópnum, en vandinn sé ekki nýr af nálinni. „Við fengum spurnir af honum fyrir svona mánuði síðan, en þetta er bara einn af þessum fjölmörgu hópum sem er að sitja um börnin okkar,“ segir Sigurður. „Við náttúrlega erum á netinu og barnaperri í Nepal getur haft samband við börnin okkar.“ Ekki sé um skipulögð félagasamtök með stjórn að ræða, heldur menn með svipaða og annarlega hugmyndafæði. „Flest sem sameinar þessa hópa er ákveðin mannfyrirlitning. Að fá börn til að fremja ofbeldi, senda þeim myndir og tæla þau til alls konar verka.“ Engin börn séu óhult Oft reyni brotamennirnir, til dæmis í gegnum tölvuleiki, að spjalla við börnin, vingast við þau og vinna sér inn traust þeirra og fá þau síðan til að gera hluti. „Börn sem eru oft einangruð eru viðkvæm fyrir þessu og það er mjög erfitt að kannski upplifa fyrstu vinatengslin í mörg ár, og svo á ég ekki að gera það sem vinur minn biður mig um, eini vinur minn,“ segir Sigurður. Mikilvægt sé þó að muna að hvaða börn sem er geti lent í þessu, þótt sum börn kunni að vera útsettari en önnur. „Við megum aldrei sem foreldrar hugsa: barnið mitt lendir ekki í þessu.“ Það geti tekið allt frá nokkrum klukkutímum og upp í einhverja mánuði fyrir brotamennina að ná í gegn til barnanna. „Miðað við það sem maður hefur lesið þá eru þessir aðilar að nota tækni sem er alveg vitað að virkar. Tækni sem virkar ekki á öll börn, en þetta er bara eins og þegar skýtur netinu vítt, þá veiðirðu eitthvað,“ útskýrir Sigurður. Spjall í gegnum tölvuleiki sérstaklega varhugavert Honum þyki skrýtið hvað mörg ung börn eru komin á miðla þar sem hver sem er getur talað við þau. „Ég mæli alls ekki með því að foreldrar leyfi Roblox, sérstaklega hjá miðstigi, varla á unglingastigi heldur.“ Á Roblox sé afar auðvelt fyrir hvern sem er að nálgast börnin og spjallað við þau. Börn á miðstigi grunnskóla séu mikið í Roblox, jafnvel niður á yngsta stig, en leikurinn sé ekki eins vinsæll á unglingastigi. Þá séu krakkarnir hins vegar meira að nota Discord, spjallforrit sem mikið er notað í tengslum við tölvuleiki en líka bara í spjall um hitt og þetta. Vitað sé um að minnsta kosti eitt dæmi á Íslandi þar sem barn hafi orðið fyrir barðinu á 764 hópum og verið sé að rannsaka fleiri. „Maður leiðir að því líkum að það er fullt af dæmum þarna úti sem við vitum ekki um,“ segir Sigurður. Leggur til að leyfa ekki Roblox En hvað er til ráða og hvað ættu foreldrar að hafa í huga var Sigurður meðal annars spurður um í spjallinu. „Eins og með Roblox og Discord og alla þessa tölvuleiki þar sem er hægt að tala beint við börn, þar ættum við ekki að leyfa. Punktur. Ekki nema að við séum tilbúin að vera yfir öxlinni á þeim,“ segir Sigurður. Jafnvel þótt foreldrar séu í sama herbergi og börnin, ef til vill að gera eitthvað annað, gæti einhver verið að reyna að tæla börnin þeirra á meðan. „Það getur einhver verið að tæla barnið þitt fyrir framan þig. Þannig við þurfum að setja mörk. Og ég hreinlega skil ekki hvaða bylgja það var, og þetta er ekki bara á Íslandi heldur í öllum heiminum í covid, að Roblox var allt í einu frábært fyrir miðstig, eða lítil börn. Sem er bara langt í frá.“
Ofbeldi gegn börnum Börn og uppeldi Netglæpir Mest lesið Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Innlent Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Innlent Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Innlent Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Innlent „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Innlent Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Innlent Fleiri fréttir Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Ráðherra með „fráleita hótun“ Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Einfaldur seðill flýtir ekki lokatölum Þúsundir Úkraínumanna mótmæla hrókeringum Selenskís Undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði í fullum gangi og hækkun hámarkshraða rædd Klóraði lögreglumann og beit annan Ólafur ráðinn sveitarstjóri Skagastrandar Geri foreldra og börn að lögbrjótum Enginn framhaldsskólakennari meti stöðu nýnema mjög góða Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Almar nýr formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga Dró strætóbílstjóra úr sætinu og potaði í augu hans Kalla inn Voga ídýfu vegna vanmerkts ofnæmisvalds MAST hafi farið gegn áliti fagráðs um blóðmerahald Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Lengja opnunartíma í Salalaug Sjá meira