Langþráður sigur með nýtt kerfi en Slot áhyggjufullur Valur Páll Eiríksson skrifar 23. október 2025 09:30 Púllarar lentu undir í gær en komu sterkir til baka og unnu langþráðan sigur. Það er þó ekki allt jákvætt eftir gærkvöldið. EPA/RONALD WITTEK Tveir leikmenn Liverpool fóru meiddir af velli í langþráðum 5-1 sigri liðsins á Eintracht Frankfurt í Meistaradeild Evrópu í Þýskalandi í gærkvöld. Arne Slot, þjálfari liðsins, þarf enn um sinn að vefja sænska framherjann Alexander Isak í bómull.
Liverpool vann sannfærandi sigur í gær eftir fjögur töp liðsins í röð. Slot gerði fimm breytingar frá tapi liðsins fyrir Manchester United um helgina, þar á meðal setti hann Egyptann Mohamed Salah á bekkinn. Það er í fyrsta sinn á átta ára ferli Salah í Bítlaborginni sem hann situr á bekknum vegna slæms gengis innan vallar. Salah hefur heillað fáa það sem af er vetri.Peter Byrne/PA Images via Getty Images Það bar árangur. Slot breytti um kerfi og var það líkara 4-4-2 heldur en 4-2-3-1. Hugo Ekitiké og Alexander Isak voru saman frammi á meðan Florian Wirtz var á hægri kanti, með frelsi til að færa sig inn á miðju. Wirtz lagði upp eitt marka gærkvöldsins, fyrsta stoðsending hans síðan í Samfélagsskildinum í ágúst. Curtis Jones og Dominik Szoboszlai voru tveir á miðjunni og þurftu að hlaupa umtalsvert í fjarveru meidds Ryans Gravenberch. Szoboszlai var að öðrum ólöstuðum besti leikmaður vallarins í gærkvöld. Frankfurt-liðið féll saman í síðari hálfleik gegn Liverpool-liði sem lék á als oddi, en varhugavert væri að dæma Rauða herinn um of að leik gærkvöldsins þar sem mótstaðan var býsna lítil. Gæti verið mikið högg fyrir Isak Ekki er allt jákvætt eftir gærkvöldið. Alexander Isak átti fína spretti og fékk tvö ágætis færi en fór svo meiddur af velli í leikhléi. „Hann komst nærri því að skora nokkrum sinnum, en þurfti að fara út af í hálfleik. Það er erfitt að finna jafnvægið með hann. Þegar hann kom fyrst hafði hann varla æft. Svo það þarf að taka þetta skref fyrir skref,“ segir Slot um Svíann sem á enn eftir að stimpla sig inn eftir metkaup Liverpool á Isak frá Newcastle á lokadegi félagsskiptagluggans. Isak hafði verið í verkfalli hjá svarthvíta liðinu og æfði lítið í sumar. „Okkur leið eins og hann gæti núna loks spilað tvo leiki í sömu vikunni. Svo þarf hann að fara af velli vegna þess að hann fékk tak í nárann. Ég vona að meiðslin séu ekki slæm því ef hann verður frá í einhverjar vikur myndi það aftra framgangi hans mjög,“ segir Slot. Frimpong frá í einhverjar vikur Isak er ekki sá eini sem fór af velli í gær. Jeremie Frimpong fór af velli um miðjan fyrri hálfleik vegna tognunar á læri. Frimpong er nýlega búinn að ná sér af samskonar meiðslum í læri og ljóst að fara þarf varlega með hann. Frimpong meiddist aftan í læri í annað sinn í haust.EPA/RONALD WITTEK „Það eru gæði í þessu liði en það hjálpar ekki þegar Alisson, Giovanni Leoni frá og nú býst ég við að Jeremie verði frá í nokkrar vikur,“ „Hann jafnaði sig af tognun aftan í læri fyrir nokkrum vikum. Hann spilaði einn leik með landsliðinu, kom aftur hingað og því miður, meiddur aftur og þurfti að fara af velli,“ segir Slot. Þeir Frimpong og Isak eru þeir leikmenn Liverpool sem hefur hvað erfiðlegast gengið að stimpla sig inn hjá liðinu eftir að hafa samið við það í sumar. Florian Wirtz hefur sætt töluverðri gagnrýni en hefur þó tekist betur að komast í takt við spilamennsku þess þrátt fyrir að mörk og stoðsendingar hafi látið á sér standa. Liverpool á næst leik í ensku úrvalsdeildinni á laugardagskvöld. Liðið sækir Brentford heim til Lundúna klukkan 19:00 á laugardag. Þá mætir liðið Crystal Palace á Anfield í enska deildabikarnum á miðvikudag í næstu viku.
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Fótbolti Mest lesið Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Íslenski boltinn Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Íslenski boltinn Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn McTominay í hjartaaðgerð Fótbolti Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Fleiri fréttir Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Sjá meira