Meinað að taka þátt þar sem hún þurfti að hafa barnið með sér Agnar Már Másson skrifar 24. október 2025 14:34 „Mér og annarri stelpu var nánast hent úr tíma bara fyrir það eitt að mæta með börnin okkar,“ skrifar Gerda, móðir sem nemur leikskólakennarafræði í fæðingarorlofinu sínu. Vísir/Viktor Freyr Móðir í leikskólakennaranámi við Háskólann á Akureyri er afar ósátt eftir að kennari við skólann meinaði henni að taka þátt í námslotu vegna þess að hún þurfti að hafa barnið sitt með sér. Þetta varð til þess að hún gat aðeins fengið þriðjung af lotunni metinn. Hún er síður ánægð með aðgerðaleysi skólans í málinu og sakar hún kennarann um brot þagnarskyldu.
Móðirin, Gerda Eidukaite Björgvinsdóttir, greinir frá málinu á Facebook en þar útskýrir hún að þó að námið sé auglýst sem sveigjanlegt fjarnám sé skyldumæting á hverri önn í tvær lotur. Þrátt fyrir góðar móttökur frá flestum kennurum í skólanum segir hún eitt súrt epli ávallt fylgja körfunni. Í þessu tilfelli sé það tiltekinn kennari sem neitar að leyfa nemunum að mæta með börnin sín í tíma. „Mér og annarri stelpu var nánast hent úr tíma bara fyrir það eitt að mæta með börnin okkar,“ rekur Gerda söguna. Í samtali við Vísi baðst hún undan viðtali um málið en gaf Vísi góðfúslegt leyfi til að birta færsluna. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem slíkt mál ratar í fjölmiðla en í janúar 2024 þurfti einstæð móðir að velja á milli þess að segja sig úr áfanga í fjarnámi í leikskólafræði við Háskólann á Akureyri eða sætta sig við lægri einkunn þar sem ekki væri leyfilegt að vera með barn í einum kúrsi. Hefði frestað barneign hefði hún vitað af barnabanni - Vísir Tæplega 40 prósenta verkefni „Kennarinn vissi fyrirfram að það væri barn sem myndi fylgja móður í tíma. Stelpan sem senti tölvupóstinn um að fá leyfi til að mæta með barn fékk að vita deginum áður að það “væri ekki æskilegt að mæta með barn í tímann” en þar sem hún var mætt í lotuna frá sunnan [svo] og með engan til að passa þá hafði hún ekkert val en að mæta með barnið.“ Og hún hafi verið í sömu stöðu og samnemandi sinn; ættingjarnir búi allir fyrir sunnan og enginn hafi fengist til að passa. Mæðginin mættu því í tímann en viðtökurnar hafi verið hreinlega ömurlegar. „Okkur var meinuð þátttaka í verkefninu sem gildir 39% af lokaeinkunn,“ segir hún hafi svo talað við deildarstjóra sem hafi sagst ætla að ræða við kennarann og reyna að finna lausn. „Við setjumst fram og bíðum í nánast 3 klukkutíma til þess að fá svör hvað við ættum að gera. Kennarinn kom til okkar og segir okkur að lausnin er sú að við megum einungis gera 1/3 af verkefninu svo þar af leiðindum fáum við 1/3 af einkunn (sem er 13% af 39%).“ Bar fyrir sig spes ljós Þær hafi vitaskuld ekki verið sáttar en reynt kurteisislega að ræða við kennarann, sem hafi sagt þeim að þar sem hún reiknaði ekki með börnum þá skipulagði hún stofurnar þannig að kerrur kæmust ekki fyrir, sem Gerda telur lélega afsökun þar sem pósturinn um að barn myndi fylgja nema hafi verið sendur til hennar í ágúst en lotan hafi verið um miðjan september. Þá hafi kennarinn einnig borið fyrir sig að í einni stofunni væri „spes ljós“ sem ekki væri æskilegt fyrir ungbörn. Þá hafi kennarinn heldur ekki fallist á þá lausn að hafa börnin sofandi í kerrunum frammi á gangi, þrátt fyrir að vinnuhópar þeirra hefðu verið tilbúnir að koma til móts við þær vegna þessa. Þær hafi þó á endanum fengið að taka þátt en þeim gert að sitja einar út í horni og trufla ekki aðra. Eftir lotuna hafi mæðurnar sent skólanum kvörtun enda hafi þær viljað fá að ræða lausn á því hvernig vinna mætti upp þessi 26 prósent af námsmatinu sem þær hefðu misst úr vegna málsins. Deildarstjóri kennaradeildar hafi svarað henni á þá leið að það kæmi sér ekki við þar sem kennarinn réði. „Ef við viljum fá lausn þá verðum við að ræða við kennarann einar, sem við vorum búnar að gera en það var ekki hlustað á okkur,“ skrifar hún. Kennarinn hafi brotið þagnarskyldu „Á meðan á þessu stóð þá var kennarinn að brjóta þagnarskyldu og ræða þetta mál í sundlaug í almenningi og segja öllum hvað henni fyndist fáránlegt að engin væri sammála henni til þess að meina börn í tíma,“ heldur Gerda áfram. „Ég nefndi þetta við deildastjórann en hann minntist ekkert á það í sínu svari í tölvupósti.“ Nú sé málið komið á borð nemendaráðs en einu upplýsingar sem henni hafi borist væru að verið væri að búa til reglur varðandi börn í tímum þar sem nú séu engar reglur um það í kennaradeildinni. Ekkert barnabann í Háskóla Íslands - Vísir „Ég veit ekkert hvort við fáum að vinna upp þessa einkunn.. eins og er er staðan þannig að lokaeinkunn sem við getum fengið er 6,7 og það er bara ef við fáum 10 í öllu öðru.. og þetta er BARA því við neyddumst til þess að mæta með börnin okkar í lotu,“ skrifar hún. „Hin stelpan minntist á þetta við kennarann og segir að hún sjái ekki fyrir sér að klára áfangann ef hún mæti ekki í lotuna og svarið var bara “það kemur mér ekki við”.“ Kennaranámið hjá HA sé því greinilega ekki sveigjanlegt nám, og nú sé verið að búa til reglur sem geti komið í veg fyrir það að mæður í fæðingarorlofi geti menntað sig.“ „Mér finnst sorglegt að við erum ekki komin lengra í samfélaginu okkar en þetta. Og já ég fékk alveg að heyra frá nokkrum starfsmönnum að “sumar mæður taka sér frí frá námi meðan þær eru að sinna krílunum.““ Í kaldhæðnislegum tón þakkar hún svo Háskólanum á Akureyri fyrir að vera hvetjandi staður fyrir mæður í námi. „Þið fáið ekki mín meðmæli fyrir ykkar “sveigjanlega” nám.“
Akureyri Skóla- og menntamál Háskólar Börn og uppeldi Leikskólar Mest lesið Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Lúsmýi fækkar en moskítóflugan ekki dauð úr öllum æðum Innlent Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Innlent Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Innlent Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Innlent Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 Innlent Fleiri fréttir Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýi fækkar en moskítóflugan ekki dauð úr öllum æðum Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Íbúi í Kænugarði um stríðið og áhyggjur lögreglu af erlendum áhrifum á ESB-kosningu Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Sjá meira